Tilefni heimsóknarinnar var verkefnið „Stækkaðu framtíðina“ sem ætlað er að tengja fólk af vinnumarkaði við skólastofur landsins til að segja nemendum frá starfi sínu og menntun, en ráðherrarnir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskólamála, kynntu verkefnið í síðasta mánuði. Verkefnið verður í umsjá Nýsköpunar- og menntasamfélags (NýMennt) á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og er aðalskipuleggjandi þess Ragna Skinner, verkefnastjóri hjá háskólanum.
Í heimsókninni í Landakotsskóla gaf Sævar Helgi, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, krökkunum innsýn í starf sitt og hvað leiddi hann þangað.

Nick Chambers er forsprakki upprunalegu útgáfu verkefnisins í Bretlandi sem nefnist Inspiring the Future og var sett á laggirnar í Bretlandi árið 2012. Verkefnið hefur einnig verið sett upp í Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Sviss.
Nick kom til landsins á vegum breska sendiráðsins til að ræða meðal annars við ýmsa tengiliði úr skólakerfinu og stjórnmálum.
Nú þegar hafa yfir sex hundruð sjálfboðaliðar skráð sig til leiks en í heimsókn sinni hefur Nick lagt áherslu á að fá eins fjölbreyttan hóp sjálfboðaliða og mögulegt er, og hvetur fólk í öllum starfsgreinum og hlutverkum að skrá sig.
Breski sendiherrann Dr Bryony Mathew hefur sjálf skráð sig sem sjálfboðaliða í verkefnið „Stækkaðu framtíðina“ en hún hefur einnig verið sjálfboðaliði hjá „Inspiring the Future“ í nokkurn tíma og talað við fjölda nemenda í Bretlandi í gegnum fjarfundarbúnað.

„Á Íslandi fer Bryony í grunnskóla víða um Ísland ásamt Sunnu Marteinsdóttur og Berglindi Jónsdóttur sem einnig starfa í sendiráðinu, en nú hafa þær hitt yfir 600 börn á landinu þar sem þær kynna bókina „Tæknitröll og íseldfjöll“ sem Bryony skrifaði fyrir íslensk börn um spennandi störf framtíðarinnar,“ segir í tilkynningu.
