Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Lovísa Arnardóttir skrifar 22. mars 2024 09:00 Ingunn og Þórir stofna saman nýja frjósemismiðstöð sem opnar í haust. Aðsendar Á haustmánuðum verður opnuð ný frjósemismiðstöð á Íslandi. Miðstöðin hefur fengið nafnið Sunna – frjósemismiðstöð og verður rekin af hjónunum Þóri Harðarsyni, sérfræðingi í frjósemi og kennara við lífeðlisfræðideild Háskóla Íslands, og Ingunni Jónsdóttur, fæðingar- og kvensjúkdómalækni.
Þórir og Ingunn hafa miklu reynslu á þessu sviði. Þau komu að stofnun Livio á Íslandi og störfuðu þar bæði. Ingunn sem læknir og eigandi og Þórir sem yfirmaður rannsóknarstofunnar. Þau hafa starfað við frjósemislækningar á Íslandi og Svíþjóð. „Gaman að tilkynna það að við erum að fara að opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum sem hefur fengið nafnið Sunna. Í því sambandi þá höfum við lagt út þrjár atvinnuauglýsingar á Alfred.is og vonumst að sjálfsögðu að margt gott fólk hafi áhuga á að sækja um hjá okkur og hjálpa við að byggja upp góðan vinnustað saman,“ sagði Þórir í færslu sem hann birti í dag um miðstöðina á Facebook-síðu sinni. Á Alfreð er nú auglýst eftir móttökufulltrúa, ljósmóðir/hjúkrunarfræðingi og kvensjúkdóma- og fæðingarlækni. Fyrirtækið er í eigu Ingunnar og Þóris en Ósar ehf. Munu koma til með að veita þeim ýmsa stoðþjónustu eins og hvað varðar markaðsmál, vefsíðugerð og fjármál. „Okkur hefur fundist þurfa samkeppni á þennan markað. Samkeppni með hagsmuni þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda að leiðarljósi. Það þarf sárlega á samkeppni að halda. Þetta er líka okkar sérgrein og þetta er það sem okkur langar að vinna við. Að hjálpa fólki að eignast börn. Þetta er það tvennt sem liggur að baki,“ segir Þórir í samtali við fréttastofu um það af hverju þau vildu opna miðstöðina. Þórir og Ingunn hafa menntað sig og starfað við frjósemislækningar um árabil. Hann segir þeim afar mikilvægt að nýta sína menntun og reynslu í að veita fólki góða og faglega þjónustu. „Við ætlum í samkeppni við hitt fyrirtækið og reyna að gera okkur besta. Það hafa allir gott af samkeppni. Ég held að þörfin sé það mikil fyrir annan valmöguleika á Íslandi að fólk muni vilja koma og sjá hvort við getum veitt þeim góða þjónustu. Það verður gott þjónustustig og aðgengi. Við munum hafa það að leiðarljósi og við vorum að það sé pláss fyrir okkur til að gera góða hluti.“ Þórir segir að miðstöðin verði rekin í húsnæði að Urðarhvarfi 8. Unnið er að endurbótum á hæðinni en Þórir gerir ráð fyrir því að þau fái hana afhenta fljótlega eftir sumarið og geti hafið starfsemi. „Um sama leyti getum við byrjað að taka á móti fólki,“ segir Þórir. Spurður um verðskrána segir Þórir að hann geti ekki svarað því eins og stendur. Þau vinni að henni en að hún muni liggja fyrir þegar heimasíðan opnar. Hvað varðar nafnið var Sunna eitthvað sem talaði til þeirra. „Þetta er annað nafn á sólinni og von og okkur fannst það bjart og fallegt. Það er íslenskt og það talaði til okkar.“
Heilbrigðismál Börn og uppeldi Frjósemi Svíþjóð Tengdar fréttir Frjósemi stór partur af sjálfsmynd fólks og erfitt þegar hún bregst Karlar og konur sem greinast með krabbamein eru líklegri til að glíma líka við ófrjósemi. Frjósemi er stór partur af sjálfsmynd fólks og margir sem taka henni sem sjálfsögðum hlut. Aldís Eva Friðriksdóttir er ein fimm fyrirlesara á málþingi um ófrjósemi og krabbamein síðar í dag. 12. september 2023 14:09 Fólk sé að skuldsetja sig fyrir tæknifrjóvgunum Kostnaður við tæknifrjóvganir hleypur á milljónum fyrir fólk í frjósemisvanda. Í aukana færist að fólk leiti út fyrir landsteinana í aðgerðir. Ung kona notaði föðurarf sinn í tæknifrjóvgun. 3. maí 2023 23:01 Sprengja í tæknifrjóvgunum Tæknifrjóvgunum hér á landi hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Frá árinu 2019 til 2022 fjölgaði aðgerðum um 51 prósent. Þingmaður segir fjölgunina ekki koma sér á óvart. 18. apríl 2023 13:53 Fleiri sækja í frjósemismeðferðir Eftirspurn eftir frjósemismeðferðum hefur aukist töluvert síðustu ár eða frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. Biðin eftir því að komast að hefur verið allt að hálft ár þegar hún hefur verið hvað lengst. Þá hefur konum fjölgað sem vilja frysta egg. 25. ágúst 2022 21:01 Fólki verði frjálst að semja um tæknifrjóvgun að öllu leyti Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fólki verði gefið rúmt samningsfrelsi þegar kemur að tæknifrjóvgun. Á dögunum greindi kona frá því að kynfrumum látins eiginmanns hennar hafi verið eytt, þvert á vilja þeirra beggja. Frumvarpi um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun er ætlað að girða fyrir slík atvik. 12. júní 2022 21:42 Mest lesið Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti Atvinnulíf Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Viðskipti innlent Gefur eftir í tollastríði við Kína Viðskipti erlent Frumkvöðlar í áratugi: „Launalaus sjálfboðavinna fyrstu árin“ Atvinnulíf Kaupsamningur undirritaður um Grósku Viðskipti innlent Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð Viðskipti erlent Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn Viðskipti erlent Hámarkstími fullorðinna í símanum og góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Kaupsamningur undirritaður um Grósku Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Reynst betur að kaupa fasteign en hlutabréf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Munu opna tvö Starbucks-kaffihús í miðborginni Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Bærinn vildi húsið en þurfti svo að borga tvöfalt meira Aðalgeir frá Lucinity til Símans Latabæjarnammið vel þekkt um allan heim Ölgerðin ræður tvo markaðsstjóra Íslenskur kauphallarsjóður á markað í Bandaríkjunum Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Sjá meira
Frjósemi stór partur af sjálfsmynd fólks og erfitt þegar hún bregst Karlar og konur sem greinast með krabbamein eru líklegri til að glíma líka við ófrjósemi. Frjósemi er stór partur af sjálfsmynd fólks og margir sem taka henni sem sjálfsögðum hlut. Aldís Eva Friðriksdóttir er ein fimm fyrirlesara á málþingi um ófrjósemi og krabbamein síðar í dag. 12. september 2023 14:09
Fólk sé að skuldsetja sig fyrir tæknifrjóvgunum Kostnaður við tæknifrjóvganir hleypur á milljónum fyrir fólk í frjósemisvanda. Í aukana færist að fólk leiti út fyrir landsteinana í aðgerðir. Ung kona notaði föðurarf sinn í tæknifrjóvgun. 3. maí 2023 23:01
Sprengja í tæknifrjóvgunum Tæknifrjóvgunum hér á landi hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Frá árinu 2019 til 2022 fjölgaði aðgerðum um 51 prósent. Þingmaður segir fjölgunina ekki koma sér á óvart. 18. apríl 2023 13:53
Fleiri sækja í frjósemismeðferðir Eftirspurn eftir frjósemismeðferðum hefur aukist töluvert síðustu ár eða frá því kórónuveirufaraldurinn hófst. Biðin eftir því að komast að hefur verið allt að hálft ár þegar hún hefur verið hvað lengst. Þá hefur konum fjölgað sem vilja frysta egg. 25. ágúst 2022 21:01
Fólki verði frjálst að semja um tæknifrjóvgun að öllu leyti Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fólki verði gefið rúmt samningsfrelsi þegar kemur að tæknifrjóvgun. Á dögunum greindi kona frá því að kynfrumum látins eiginmanns hennar hafi verið eytt, þvert á vilja þeirra beggja. Frumvarpi um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun er ætlað að girða fyrir slík atvik. 12. júní 2022 21:42