Eftir að hafa fagnað 5-0 sigri um helgina máttu Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley þola 1-0 tap er liðið heimsótti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Jóhann Berg hóf leik á varamannabekk Burnley í kvöld, en kom inn á strax á 36. mínútu fyrir Luca Koleosho sem þurfti að fara af velli vegna meiðsla.
Aðeins sex mínútum síðar tóku heimamenn í Wolves forystuna þegar Hee-Chan Hwang kom boltanum í netið eftir undirbúning Matheus Cunha og staðan var því 1-0 í hálfleik. Þrátt fyrir nokkur hálffæri í síðari hálfleik tókst hvorugu liðinu að finna netmöskvana eftir hlé og niðurstaðan varð því eins marks sigur Úlfanna.
Með sigrinum fara Úlfarnir í 18 stig í 12. sæti deildarinnar eftir 15 leiki, ellefu stigum meira en Burnley sem situr í 19. sæti.