Eðalfang eignast meirihluta í 101 Seafood Árni Sæberg skrifar 17. október 2023 15:14 Úr fiskvinnslu Eðalfisks á Akranesi. Eðalfiskur Eðalfang ehf. hefur keypt 50,1 prósent hlutafjár í félaginu 101 Seafood ehf., og verður þar með stærsti hluthafi félagsins.
Í tilkynningu um kaupin segir að með þeim bætist 101 Seafood inn í samstæðu Eðalfangs, sem sé í grunninn tvö matvælafyrirtæki með áherslu á sjávarútveg. Annars vegar Eðalfiskur ehf. í Borgarnesi og hins vegar Norðanfiskur ehf. á Akranesi. Eðalfiskur sérhæfi sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum, en Norðanfiskur sérhæfi sig í framleiðslu, sölu og dreifingu á úrvalssjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa á innanlandsmarkaði ásamt sölu sjávarfangs í neytendapakkningum í verslunum um land allt. 101 Seafood hafi tekist að skapa sér sérstöðu á markaði við innflutning og sölu sjávarafurða. Með góðum samböndum við trygga birgja hafi félagið orðið leiðandi í innflutningi á eftirsóttum skelfiski á borð við humar og hörpudisk. Andri Gunnarsson, stjórnarformaður Eðalfangs, bindi miklar vonir við samrunann og segi áætlanir stjórnenda 101 Seafood falla vel að framtíðarsýn Eðalfangs. Kaupin og aukin samvinna félaganna komi því til með að styrkja rekstur Eðalfangssamstæðunnar. Félögin hafi átt í nánu samstarfi undanfarin ár og kaupin séu liður í enn frekari samvinnu þeirra til framtíðar. Samkeppniseftirlitið hafi samþykkt viðskiptin fyrr á árinu en gengið endanlega frá kaupunum miðvikudaginn 4. október.
Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Fleiri fréttir Síðasti dropinn á sögulegri stöð Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent