„Ranka við mér og átta mig á því að hún er dáin“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. október 2023 09:14 Sigrún og Lárus ásamt dóttur sinni Örnu, nýfæddum syni sínum og regnbogabarninu Val og hundinum Móu. Sigrún Kristínar Valsdóttir „Það var náttúrulega hræðilega flókið og erfitt að skilja hana eftir á spítalanum en ég er samt svo þakklát fyrir þennan tíma,“ segir Sigrún Kristínar Valsdóttir, stjórnarkona í Gleymmérei Styrktarfélagi, en hún og Lárus Örn Láruson misstu dóttur sína Ylfu Sigrúnar Lárusdóttur eftir 38 vikna meðgöngu í desember 2021.
Gleymmérei Styrktarfélag býður í dag til árlegrar minningarstundar í Safnaðarheimili Kópavogskirkju klukkan 15:00. Dagurinn í dag er á heimsvísu tileinkaður missi á meðgöngu og barnsmissi. Þakklát fyrir minningarkassann „Við áttum von á dóttur. Seinna barninu okkar. Svo missum við hana í fæðingu. Ég var semsagt farin af stað og er rosa spennt og set stelpuna mína stóru í pössun til ömmu sinnar um miðja nótt. Þegar ég kem svo upp á spítala kemur í ljós að það er eitthvað skrítið í gangi og ég fer í bráðakeisara,“ segir Sigrún. „Ég vakna svo eftir keisara og við tók rosalega óraunverulegur tími. Ég ranka við mér og átta mig á því að hún er dáin. En þá var svo ótrúlegt að það var búið að koma inn á sjúkrastofuna með kassa frá Gleymmérei.“ Sigrún þegar hún gekk með Ylfu. Sigrún segir það hafa verið ómetanlegt að hafa fengið minningarkassann, sem hafi gert þeim hjónum kleyft að minnast litlu stelpunnar sinnar. „Sérstaklega á þeim tíma sem við náum ekki utan um það hvað var að eiga sér stað. Þarna var mót til að taka fótspor og handarmót, skartgripur, bangsi, minningarbók og fleira. Þetta var okkur svo dýrmætt, að stíga inn í sorgina og að einhver annar hafi lagt í þá vinnu að hugsa fyrir okkur hvernig væri hægt að minnast lítils barns sem þú fékkst ekki að eiga.“ Sigrún segir að því miður þekki hún missi vel. Hún hafi misst systur sína fyrir tuttugu árum síðan og pabba sinn fyrir fimm árum. Í þeirri sorg sé auðveldara að ylja sér við minningar. „En þetta, að missa barn, það er að syrgja það sem aldrei verður. Þar kemur styrktarfélag eins og Gleymmérei sterkt inn.“ Fengu að hafa Ylfu hjá sér Sigrún segir það félagið hafi jafnframt gefið Landspítalanum kælivöggur. Það hafi reynst foreldrum líkt og Sigrúnu og Lárusi ómetanlegt, enda gera þær foreldrum kleyft að vera með börnunum sínum. „Ég fer þarna í bráðakeisara og er vönkuð eftir svæfingu og átti bara ofboðslega erfitt með að meðtaka stöðuna. Þannig að það lá í raun og veru ekkert á. Við vorum á spítalanum í fjóra daga á meðan ég var að jafna mig eftir keisarann og við gátum verið með Ylfu hjá okkur,“ segir Sigrún. Sigrún og Lárus með Val, nýfæddan son sinn. Hann er regnbogabarn en þá nafngift fá börn sem koma í heiminn eftir missi á meðgöngu.Sigrún Kristínar Valsdóttir „Það var náttúrulega hræðilega flókið og erfitt að skilja hana eftir á spítalanum en engu að síður var ég svo þakklát fyrir þennan tíma. Að fá einhvern veginn að ná andanum.“ Sigrún segist hafa kynnst starfi styrktarfélagsins í kjölfarið. Þar hafi hún kynnst góðum vinum sem hafi verið í sömu stöðu. Hún segir minningarstundina í dag opna öllum. „Hún er hugsuð bæði fyrir aðstandendur og syrgjendur. Það verða tónlistaratriði og hugvekjur. Svo ætlar forsetinn að vera með ávarp. En svo er bara kaffi og róleg kyrrðarstund. Við finnum það hvað það gefur mörgum mikið að geta hist og minnst barnanna sinna saman.“
Börn og uppeldi Helgarviðtal Ástin og lífið Sorg Mest lesið Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferðalag Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira