Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2023 Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 26. september 2023 11:41 Handritshöfundar skaupsins verða þau Þorsteinn Guðmundsson, Benedikt Valsson, Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi. Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir, Karen Björg Þorsteinsdóttir og Fannar Sveinsson. Instagram/skjáskot Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson verða leikstjórar Áramótaskaupsins. Þeir eru hvað þekktastir fyrir Hraðfréttir sem voru á dagskrá fyrst á mbl.is og svo á RÚV um árabil.
Handritshöfundar skaupsins verða þau Þorsteinn Guðmundsson, sem gerði garðinn frægan með Fóstbræðrum. Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi. Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir sem mynduðu gríntvíeykið Þær Tvær. Síðust í teyminu er Karen Björg Þorsteinsdóttir, sem er ein af höfundum grínseríunnar Venjulegt fólk ásamt þeim Júlíönu Söru, Völu Kristínu og Fannari. Júlíana Sara birti mynd af hópnum á Instagram á sunnudaginn en myndin var síðan tekin út. Samkvæmt heimildum fréttastofu er hópurinn byrjaður að vinna að handritagerð á Skaupinu. Það er framleiðslufyrirtæki Benedikts og Fannars, Pera Production, sem framleiðir Skaupið. Áramótaskaupið er án efa einn af stærstu sjónvarpsviðburðum ársins. Það má með sanni segja að árið 2023 hafi verið viðburðarríkt og verður fróðlegt hvernig Skaupið tekst til, en nóg er af efni til að vinna með. Í tilkynningu frá RÚV. segir Fannar að hópurinn hafi hafið störf og stemmning í hópnum góð. „Metnaðurinn er mikill og lofum góðu skaupi sem hentar öllum aldri,“ segir Fannar. Undanfarin sex ár hafa þau Vala Kristín, Júlíana Sara, Karen Björg og Fannar unnið náið saman að þáttunum Venjulegt fólk og því er komin góð reynsla á það samstarf. Fannar bætir svo við að „það kemur svo ótrúleg húmorviska frá Þorsteini Guðmunds sem var í Fóstbræðrum og svo er Sveppi með sinn einstaka húmor sem slær alltaf í gegn. Það er því óhætt að segja að hér á ferð er góð blanda sem á eftir að búa til skemmtlegt skaup.“ Þetta áramótaskaup er það 57. í röðinni en það hóf göngu sína árið 1966 og hefur verið ómissandi atburður í lífi Íslendinga síðan. Fréttin var uppfærð eftir að tilkynning barst frá RÚV.
Áramótaskaupið Bíó og sjónvarp Grín og gaman Tengdar fréttir Hilmir Snær og Vala Kristín stinga saman nefjum Einn eftirsóttasti piparsveinn landsins, Hilmir Snær Guðnason, leikari og leikkonan Vala Kristin Eiríksdóttir eru að hittast. 29. júní 2023 13:43 Fannar fékk gæsahúð þegar Laufey lýsti því að hún væri að upplifa drauminn Þátturinn Framkoma hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 á dögunum. En í þáttunum fylgist Fannar Sveinsson með þekktum Íslendingum áður en þeir stíga á svið. 4. maí 2023 15:31 Fannar og Vala orðin hjón: Fékk sér húðflúr í staðinn fyrir hefðbundinn giftingarhring Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir, eða Vala eins og hún er kölluð, giftu sig síðastliðinn föstudag hjá sýslumanni. Eva Ruza og Hjálmar Örn gáfu þau aftur saman um kvöldið heima hjá Bergþóri Pálssyni og Alberti Eiríkssyni auk þess sem Björn Jörundur og Daníel Ágúst tóku lagið. Fannar ákvað að láta húðflúra á sig giftingarhringinn. 11. desember 2022 18:00 Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira
Hilmir Snær og Vala Kristín stinga saman nefjum Einn eftirsóttasti piparsveinn landsins, Hilmir Snær Guðnason, leikari og leikkonan Vala Kristin Eiríksdóttir eru að hittast. 29. júní 2023 13:43
Fannar fékk gæsahúð þegar Laufey lýsti því að hún væri að upplifa drauminn Þátturinn Framkoma hóf göngu sína á nýjan leik á Stöð 2 á dögunum. En í þáttunum fylgist Fannar Sveinsson með þekktum Íslendingum áður en þeir stíga á svið. 4. maí 2023 15:31
Fannar og Vala orðin hjón: Fékk sér húðflúr í staðinn fyrir hefðbundinn giftingarhring Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir, eða Vala eins og hún er kölluð, giftu sig síðastliðinn föstudag hjá sýslumanni. Eva Ruza og Hjálmar Örn gáfu þau aftur saman um kvöldið heima hjá Bergþóri Pálssyni og Alberti Eiríkssyni auk þess sem Björn Jörundur og Daníel Ágúst tóku lagið. Fannar ákvað að láta húðflúra á sig giftingarhringinn. 11. desember 2022 18:00