Tara Sif og Elfar fengu til liðs við sig brúðkaupstýru (e. wedding planner), sem sá til þess að skipuleggja daginnn með þeim.
„Ég var í samskiptum við hana í gegnum Whatsapp en hún talaði ekki einu sinni ensku svo ég sendi allar upplýsingar í gegnum Google translate. Ég sendi svo á hana myndir af Pinterest eins og ég sá brúðkaupið fyrir mér,“ segir Tara og bætir við: „Hún gerði allt eins og ég hafði hugsað mér, alveg geggjuð!“

Tengdamamma gaf þau saman
Á fimmtudeginum buðu brúðhjónin gestum sínum sem gistu á svæðinu í vínsmökkun í fallegum garði undir berum himni. Um kvöldið var matur, partý og gleði fram á nótt. Samtals voru brúðkaupsgestir 99 talsins.
Athöfnin fór fram á föstudeginum 11. ágúst undir berum himni á samkomusvæði (e.venue) umkringt gróðri, blómum og útsýni að vatni.
Auk þess var blómabogi, hvítir stólar, blævængir og hvítur dregill að altarinu, rómantískara verður það varla.


„Tengdamóðir mín gaf okkur saman, hún er leikkona og vissum við að hún myndi gera það vel. Við vorum nú þegar gift svo þetta varð smá leikrit,“ segir Tara kímin.
Systir Elfars, Ísold Ylfa Schweitz, söng lögin Can't Help Falling in Love með Elvis Presley og All of Me með John Legend í athöfninni og Jökull í Kaleo, Vor í Vaglaskógi.
Veislan var haldin í glæsilega skreyttum sal þar sem boðið var upp á fjölréttaseðil af ítölskum sið.
„Vinkona mín sem er að vinna með mér fór til Rómar í júní og smakkaði réttina og valdi í rauninni það sem átti að vera,“ segir Tara og hlær.




Á laugardagskvöldið kvöddu hjónin gestina með glæsibrag og héldu kveðjupartý í miðborg Rómar á rooftop-bar.
„Ég gæti ekki verið hamingjusamari með útkomuna,“ segir Tara Sif.














Stjarna dagsins
Morguninn fyrir brúðkaupið klæddust vinkonur Töru bleikum sloppum í stíl og hjartalaga sólgleraugum, Tara stóð út úr hópnum eins og sannkölluð starna, klædd hvítu korselett og silkislopp. Myndirnar af hópnum minna einna helst á atriði úr bíómynd.


Bónorð á toppi Kistufells
Hjónin trúlofaði sig í ársbyrjun 2022. Elfar bauð Töru í óvænt þyrluflug sem endaði með bónorði á toppi Kistufells á Esjunni við sólsetrið, gerist varla rómantískara. Fimm mánuðum síðar giftu þau sig í Las Vegas þar sem þau voru stödd með vinafólki.