Innlent

Þingmenn risu úr sætum og minntust Önnu Kolbrúnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þingmenn risu úr sætum og minntust Önnu Kolbrúnar við upphaf þingfundar.
Þingmenn risu úr sætum og minntust Önnu Kolbrúnar við upphaf þingfundar. Alþingi

Þingmenn minntust Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, fyrrverandi alþingismanns, við upphaf þingfundar í dag. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, flutti minningarborð um Önnu Kolbrúnu.

„Anna Kolbrún Árnadóttir, fyrrverandi alþingismaður og varaþingmaður á þessu kjörtímabili, lést á Akureyri 9. þessa mánaðar, 53 ára að aldri. Anna Kolbrún fæddist á Akureyri 16. apríl 1970, dóttir hjónanna Árna V. Friðrikssonar og Gerðar Jónsdóttur. Hún ólst upp á Akureyri og þar við Verkmenntaskólann tók hún sjúkraliðapróf. Anna Kolbrún starfaði sem sjúkraliði um árabil, fyrst á Akureyri og síðan í Danmörku þar sem hún bjó um skeið. Á Danmerkurárunum söðlaði Anna Kolbrún um og tók að nema kennslufræði fyrir leikskóla. Hún lauk námi sem leikskólakennari í Óðinsvéum árið 2002, flutti þá heim til Akureyrar og hélt þar áfram að bæta við sig námi í menntunar- og sérkennslufræðum sem hún lauk með M.Ed.-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2010. Eftir heimkomuna frá Danmörku og þar til hún settist á þing starfaði Anna Kolbrún lengstum við grunnskóla í heimabæ sínum.

Anna Kolbrún Árnadóttir fyrrverandi þingmaður.

Anna Kolbrún Árnadóttir starfaði á vettvangi Framsóknarflokksins á Akureyri um skeið og var formaður Landssambands Framsóknarkvenna á árunum 2015–2017, en gekk í Miðflokkinn við stofnun hans og var kjörin á þing af framboðslista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2017. Hún var varaformaður flokksins frá 2018. Anna Kolbrún sat á þingi kjörtímabilið sem hófst haustið 2017 og fram til kosninga haustið 2021. Í þeim kosningum var hún einnig í framboði fyrir Miðflokkinn í Norðausturkjördæmi en náði ekki kjöri. Hún var varaþingmaður á yfirstandandi kjörtímabili og sat síðast hér í þingsalnum í mars síðastliðnum. Alls sat Anna Kolbrún á sex löggjafarþingum. Hér á þingi lét Anna Kolbrún sér títt um byggðamál og heilbrigðis- og menntamál og hún átti sæti í Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Öll störf hennar á Alþingi báru vott um vandvirkni og samviskusemi. Hún var traustur fulltrúi síns flokks í þingstörfunum þar sem hún fór fram með hægð en festu.

Anna Kolbrún Árnadóttir, fyrrverandi alþingismaður og varaþingmaður á þessu kjörtímabili, lést á Akureyri 9. þessa mánaðar, 53 ára að aldri. Anna Kolbrún fæddist á Akureyri 16. apríl 1970, dóttir hjónanna Árna V. Friðrikssonar og Gerðar Jónsdóttur. Hún ólst upp á Akureyri og þar við Verkmenntaskólann tók hún sjúkraliðapróf. Anna Kolbrún starfaði sem sjúkraliði um árabil, fyrst á Akureyri og síðan í Danmörku þar sem hún bjó um skeið. Á Danmerkurárunum söðlaði Anna Kolbrún um og tók að nema kennslufræði fyrir leikskóla. Hún lauk námi sem leikskólakennari í Óðinsvéum árið 2002, flutti þá heim til Akureyrar og hélt þar áfram að bæta við sig námi í menntunar- og sérkennslufræðum sem hún lauk með M.Ed.-prófi í uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri árið 2010. Eftir heimkomuna frá Danmörku og þar til hún settist á þing starfaði Anna Kolbrún lengstum við grunnskóla í heimabæ sínum.

Anna Kolbrún Árnadóttir starfaði á vettvangi Framsóknarflokksins á Akureyri um skeið og var formaður Landssambands Framsóknarkvenna á árunum 2015–2017, en gekk í Miðflokkinn við stofnun hans og var kjörin á þing af framboðslista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2017. Hún var varaformaður flokksins frá 2018. Anna Kolbrún sat á þingi kjörtímabilið sem hófst haustið 2017 og fram til kosninga haustið 2021. Í þeim kosningum var hún einnig í framboði fyrir Miðflokkinn í Norðausturkjördæmi en náði ekki kjöri. Hún var varaþingmaður á yfirstandandi kjörtímabili og sat síðast hér í þingsalnum í mars síðastliðnum. Alls sat Anna Kolbrún á sex löggjafarþingum. Hér á þingi lét Anna Kolbrún sér títt um byggðamál og heilbrigðis- og menntamál og hún átti sæti í Íslandsdeild Norðurlandaráðs. Öll störf hennar á Alþingi báru vott um vandvirkni og samviskusemi. Hún var traustur fulltrúi síns flokks í þingstörfunum þar sem hún fór fram með hægð en festu.“


Tengdar fréttir

Anna Kol­brún Árna­dóttir er látin

Anna Kolbrún Árnadóttir, varaþingmaður og fyrrverandi þingmaður, er látin 53 ára að aldri. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri í gærmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×