Hér má horfa á allt viðtalið við Berglindi í Kúnst:
Sér persónulegu tenginguna eftir á
Berglind segir áhugavert að sjá hvernig listin getur stundum verið á undan henni þegar það kemur að tilfinningum og erfiðum hlutum.
„Þarna var ég ekki búin að fatta held ég að ég var í einhverjum pælingum með að skilja. Svo er ég að líkja mér við Grýlu, finnst ég ekki nógu góð mamma og var með eitthvað svona óöryggi.
Ég ákveð að gera þetta verkefni um Grýlu til að finna eitthvað valdeflandi í því ferli. Hvernig hefði Grýla verið ef hún hefði bara fengið að vera hún sjálf og við hefðum ekki farið að gera þessa neikvæðu ímynd af henni? Ég fór í gegnum langt ferli og notaði sjálfa mig í verkefnið.
Svo þremur árum seinna sé ég að ég var ekki búin að tengja afhverju ég gerði þetta verkefni. Maður sér það eftir á.“
Góð tenging mikilvæg
Hún segir mikilvægt að vera í góðri tengingu við sjálfa sig og leyfa því að gerast sem kemur. Þannig verður listræna flæðið sem best.
„Stundum er þetta rosa persónulegt og svo setur maður það í einhvern búning. Það er fyndið að hugsa til baka og sjá að maður var að tjá eitthvað án þess að vita það.“

Hvað ef Grýla hefði fengið að blómstra?
Viðfangsefnið Grýla heillaði Berglindi en Grýla hefur verið nefnd fyrsti femínisti Íslands.
„Hún var rosalega kraftmikil og lifandi og átti fullt af elskhugum. Þá byrjuðu þessar sögusagnir um hana. Hún átti að hafa borðað einhvern elskhuga í morgunmat því hún var komin með leið á honum, hún átti einhvern staf sem hún gat fryst jörð með og þar kemur þessi nornapæling,“ segir Berglind og á við að kraftmiklar og ákveðnar konur hafi í sögulegu samhengi oft verið kallaðar göldróttar nornir.
„Samfélagið gaslýsir þær svona svolítið og gerir eitthvað úr þeim. Í dag er Grýla ímynd vondu stjúpunnar, birtingarmynd vondu móðurinnar í rauninni.
Ég var með þessa pælingu um hvað ef hún hefði bara fengið að blómstra fyrir allt það sem hún var. Hún var örugglega alveg kúkú en bara mjög litríkur persónuleiki og ung, ákveðin kona.“
Þættirnir KÚNST með Dóru Júlíu rannsaka hinar ýmsu víddir listsköpunar, ólíka listmiðla og sköpunargleði hjá íslenskum samtíma listamönnum ásamt því að fá að skyggnast bak við tjöldin og heyra um persónulegt líf þeirra.
Hér fyrir neðan má sjá fleiri þætti af KÚNST. Hildur Hákonardóttir er viðmælandi í þessum þætti af Kúnst. Hún hefur hefur haft mikil áhrif á íslenska listheiminn með einstökum og pólítískum verkum sínum.
Fjöllistakonan Júlíanna Ósk Hafberg er hugfangin af mjúkri, berskjaldaðri og kvenlægri orku en vinnustofa hennar og verk endurspegla það með sanni.
Í gegnum tíðina hefur Saga Sigurðardóttir verið þekkt fyrir tískuljósmyndir sínar en undanfarin ár hefur hún einnig vakið athygli fyrir abstrakt málverk sín. Við kíktum á Sögu á vinnustofu hennar en líkt og Berglind hefur Saga einnig unnið verkefni um Grýlu.