George R. R. Martin á Íslandi: „Það er smá svalt hérna“ Agnar Már Másson og Bjarki Sigurðsson skrifa 12. nóvember 2025 21:08 Krúnuleikahöfundur króknar. George R. R. Martin, höfundur Krúnuleikanna (eða Game of Thrones) er á landinu. Við hlið hans stendur íslenski glæpasagnahöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir. Sýn/Sigurjón Fantasíuhöfundurinn George R. R. Martin, sem skrifaði Krúnuleikana, var í banastuði þegar á bókahátíðinni Iceland Noir sem hófst í dag en þar er hann heiðursgestur. Hann hafði orð á veðrinu. „
Já, það er ég,“ svaraði heiðursgesturinn þegar Bjarki Sigurðsson fréttamaður spurði hann í kvöldfréttum Sýnar í kvöld hvort hann hlakkaði til helgarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Martin kemur til Íslands, þrátt fyrir að stór hluti þáttanna hafi verið tekinn upp hér á landi. „Það er reyndar smá svalt hérna,“ bætti hann við. „Ég hef verið að vara fólk við því að veturinn nálgist. Kemur í ljós að hann kom hingað fyrst.“ Heiður að hitta höfundinn Leikarinn Will Tudor, sem fer með hlutverk Olyvars í þáttunum sem byggja á fantasíubókmenntum Martins, er einnig gestur á hátíðinni og var að hitta höfundinn í fyrsta skipti þegar fréttamaðurinn náði tali af þeim. „Það er algjör heiður,“ sagði Tudor, sem kvaðst afar Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir glæpasagnahöfundar standa meðal annars fyrir hátíðinni og eru þau hæstánægð með hvernig gengið hefur. Will Tudor, Yrsa Sigurðardóttir, George R. R. Martin, Ragnar Jónasson.Sýn/Sigurjón „Við höldum að þetta sé fjórtánda árið,“ sagði Yrsa. „Maður spyr sig eiginlega: Hvar endar þetta? Þetta verður alltaf stærra og stærra.“ En það er ekki aðeins höfundur Krúnuleikanna sem lætur sjá sig, heldur einnig höfundur Smokkfiskaleikara, nánar til tekið Squid Game. Meðal annarra heiðurgesta á hátíðinni eru bresku leikararnir Önnu Friel og Richard Armitage, sænsku stórstjörnurnar Lenu Olin og Lasse Hallstrom, rihöfundar á borð við Siri Hustved, Colm Toibin og Satu Ramo og okkar eigin Andri Snær Magnason.
Game of Thrones Íslandsvinir Bókmenntir Ráðstefnur á Íslandi Menning Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira