Everton náði í stig á Brúnni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. mars 2023 19:30 Hetja Everton. Clive Rose/Getty Images Chelsea hafði unnið þrjá leiki í röð áður en Everton mætti á Brúnna í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-2 þar sem gestirnir jöfnuðu metin í blálokin.Everton náði í stig á Brúnni Eftir markalausan fyrri hálfleik lifnaði heldur betur yfir leiknum í síðari hálfleik. João Félix skoraði glæsilegt mark á 52. mínútu og Chelsea komið 1-0 yfir. Abdoulaye Doucouré jafnaði metin eftir að gestirnir höfðu átt hornspyrnu. Þegar stundarfjórðungur lifði leiks gerðist James Tarkowski brotlegur innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Kai Havertz fór á punktinn og kom Chelsea yfir á nýjan leik. Þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma jöfnuðu gestirnir hins vegar metin þökk sé marki Ellis Simms. Staðan orðin 2-2 og reyndust það lokatölur á Brúnni í kvöld. Chelsea situr því í 10. sæti með 38 stig að loknum 27 leikjum á meðan Everton er í 15. sæti með 26 stig. Enski boltinn Fótbolti
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn