Samúel Torfi og Sigrún Inga til Kadeco Atli Ísleifsson skrifar 1. mars 2023 10:49 Samúel Torfi Pétursson og Sigrún Inga Ævarsdóttir. Kadeco Sigrún Inga Ævarsdóttir hefur verið ráðin til að stýra viðskipta- og markaðsmálum hjá Kadeco og Samúel Torfi Pétursson í stöðu þróunarstjóra.
Í tilkynningu frá Kadeco segir að þau hafi þegar hafið störf. „Sigrún Inga stýrir viðskipta- og markaðsmálum hjá Kadeco. Hún kemur frá Isavia þar sem hún starfaði sem deildarstjóri samgöngu- og fasteignatekna á Keflavíkurflugvelli og þar áður sem lögfræðingur viðskiptasviðs og sérfræðingur í viðskiptaþróun. Sigrún er með BA og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og situr í núverandi stjórnum Awarego og Samtökum atvinnurekenda á Reykjanesi. Samúel Torfi hefur u.þ.b. 20 ára reynslu af fjölbreyttum verkefnum á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Hann er nýr þróunarstjóri Kadeco en starfaði áður sem ráðgjafi á umhverfis- og skipulagssviði hjá VSÓ ráðgjöf. Samúel hefur sömuleiðis starfað við fasteignaþróun hjá Klasa og hjá Þyrpingu og við verkfræðiráðgjöf í skipulagi og samgöngum hjá Ramböll í Danmörku og hjá Línuhönnun, nú Eflu. Samúel er með M.Sc. í umhverfis- og byggingaverkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku,“ segir í tilkynningunni. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hefur það að meginmarkmiði að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.
Vistaskipti Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira