Veðmálafyrirtæki hverfi framan af treyjunum Valur Páll Eiríksson skrifar 22. febrúar 2023 10:30 West Ham United (Betway) og Bournemouth (Dafabet) eru á meðal átta liða í ensku úrvalsdeildinni með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila. Chloe Knott - Danehouse/Getty Images Bresk stjórnvöld eru langt komin með frumvarp sem mun banna veðmálafyrirtækjum að auglýsa framan á treyjum liða í ensku úrvalsdeildinni. Viðræður eru sagðar eiga sér stað milli stjórnvalda og forráðamanna félaga í deildinni.
Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá. Samkvæmt heimildum miðilsins eru félög í deildinni opin fyrir því að banna auglýsingar veðmálafyrirtækja framan á treyjum liða. Veðmálaauglýsingar eru víða bannaðar og borið hefur á hertu regluverki um auglýsingar á starfseminni innan íþrótta síðustu misseri. Í síðasta mánuði var slíkt bann gegn veðmálaauglýsingum íþróttafélaga samþykkt í Belgíu. Þar verða fyrirtækin bönnuð sem aðalstyrktaraðili fyrst um sinn, en í skrefum verði auglýsingar veðmálafyrirtækja bönnuð með öllu fyrir lok árs 2025. Frumvarpið í Bretlandi, sem var langt komið í forsætisráðherratíð Boris Johnson, mun hins vegar aðeins snerta á auglýsingum framan á treyjum, samkvæmt frétt BBC. Veðmálafyrirtæki geti áfram auglýst á öðrum vettvöngum félaga, sem og á ermi treyjunnar. Átta lið af tuttugu með veðmálafyrirtæki framan á treyjunni Meginrökin fyrir slíkum bönnum er skaðsemi sem veðmál geta haft í för með sér, það er að segja veðmálafíkn. Stuðningsmenn frumvarpsins segja veðmálastarfsemi vera normalíseraðan þátt íþrótta. Aðgerða og stífara regluverks sé þörf til að verja viðkvæma hópa. Everton (Stake.com) og Leeds (SBO Top) eru bæði með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila.Tony McArdle/Everton FC via Getty Images Átta félög af 20 í ensku úrvalsdeildinni (Bournemouth, Brentford, Everton, Fulham, Leeds, Newcastle, Southampton og West Ham) eru með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila framan á treyjum sínum. Sú tala hefur verið hærri á síðustu árum en slík fyrirtæki sáust ekki framan á treyjum liða fyrir aldamót og hafa þau á skömmum tíma raunar tekið yfir sem lang algengasti styrktaraðili enskra úrvalsdeildarliða. Mörg liðanna sem ekki eru með veðmálafyrirtæki sem aðalstyrktaraðila á yfirstandandi leiktíð, hafa gert það áður. „Raunveruleikinn er sá að fyrir lið utan þeirra sex stóru, bjóða þessi fyrirtæki tvöfalt meira fjárhagslega en fyrirtæki utan veðmálageirans,“ sagði Christian Purslow, framkvæmdastjóri Aston Villa, í síðasta mánuði eftir að félagið samdi við veðmálafyrirtækið BK8. Flestir veðji á ábyrgan hátt Neðri deildir á Englandi eru með Sky Bet sem sinn aðalstyrktaraðila. EFL, sem rekur B, C og D-deild landsins (sem bera heiti Sky Bet) segir að félög í þeim deildum muni verða af 40 milljónum punda árlega ef veðmálaauglýsingar verða bannaðar alfarið. Veðmálaráð Bretlands, sem er málsvari veðmálageirans í ríkinu, er andstætt hertu regluverki og segir meirihluta þeirra 22 milljóna Breta sem veðji að staðaldri „geri það á öruggan og ábyrgan hátt.“ „Hlutfall veðmálavanda er enn lágt miðað við alþjóðlegan mælikvarða, 0,3% fullorðinna í Bretlandi - og fór niður úr 0,4% árið áður,“ segir í tilkynningu ráðsins. Almenningur verði að gangandi auglýsingaskiltum Iain Duncan Smith Iain Duncan Smith, fyrrum formaður Íhaldsflokksins, sem í dag fer fyrir hreyfingu þingmanna sem berst fyrir hertara regluverki, segir bresk lög vera á meðal þeirra frjálslegustu í heiminum þegar kemur að veðmálastarfsemi. „Í augnablikinu erum við líklega landið með frjálsustu fjárhættuspilalög í heimi,“ segir Duncan Smith. Veðmálaauglýsingar þurfi að fjarlægja af treyjum til að „stöðva þúsundir manna sem ráfa um sem gangandi auglýsingaskilti.“
Enski boltinn Fótbolti Bretland Fjárhættuspil Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira