Enski boltinn

Setja fé­lagið á sölu tveimur árum eftir kaup

Andri Broddason skrifar
Eigendur Everton ætla ekki að vera lengi sem eigendur félagsins. 
Eigendur Everton ætla ekki að vera lengi sem eigendur félagsins.  Gary Oakley/Getty Images

Eigendur Everton skoða nú möguleikann á því að selja félagið eftir að hafa keypt félagið fyrir aðeins tveimur árum. Að mati eigendanna er markmiði þeirra náð og þeir eru tilbúnir í að koma félaginu í hendur annarra.

Núverandi eigendur eru Friedkin-fjárfestingahópurinn en hann kemur frá Bandaríkjunum. Í færslu félagsins segir að fjárfestingahópurinn sé tilbúinn að selja félagið í hendur eigenda sem geta tekið næsta skref með félaginu.

„Þegar fjárfestingahópurinn tók yfir Everton var mikil fjárhagsleg óvissa bæði innan og utan vallar. Forgangurinn var að gefa félaginu stöðugleika, fjárfestingu og stuðning sem það þurfti til þess að tryggja framtíð félagsins. Það innihélt einnig að klára loksins nýjan heimavöll fyrir stuðningsmenn liðsins,“ segir félagið í tilkynningu sinni.

Leiðtogi fjárfestingahópsins er Dan Friedkin en hann hefur ekki verið mikið til staðar hjá félaginu. Í september sagði David Moyes, þjálfari Everton, að hann hefði hvorki hitt né talað við Friedkin síðan hann snéri aftur til félagsins í janúar 2025. Tengdasonur hans, Rishi Majithia, sér um dagleg verk sem stjórnandi félagsins á að sinna ásamt framkvæmdastjóranum Angus Kinnear.

Þó að Friedkin-hópurinn sé að leitast eftir því að finna nýjan eiganda þá mun hópurinn ekki samþykkja tilboð frá hverjum sem er. Aðeins verða tilboð skoðuð frá aðilum sem geta tekið næsta skref með félaginu og virðist hópnum enn þykja vænt um félagið þrátt fyrir að vilja selja það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×