„Ef af þessu verður og það dregst á langinn og truflanir verða verulegar á afhendingu eldsneytis þá verða áhrifin mjög mikil á okkar starfsemi og flugvallarins. Það er mjög margt í okkar keðju sem er háð eldsneyti þó það séu ekki beint flugvélarnar. Við munum geta fyllt á flugvélarnar en það er svo margt annað: Flutningur á starfsfólki til og frá flugvellinum, farþegum, ýmis tæki og tól,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair í samtali við fréttastofu.
„Við vonumst til að það náist samkomulag í þessu máli og einhver lausn því áhrifin geta orðið mjög alvarleg mjög fljótt. Við sjáum fram á það, ef þetta gengur eftir, að það verði truflanir á flugi strax um helgina og bara upp úr næstu viku fari leiðarkerfi langt með það að stöðvast.“
Bogi tekur þarna undir orð Birgis Jónssonar, kollega síns og forstjóra Play, sem lýsti þungum áhyggjum vegna stöðunnar í dag.
Bogi segir að strax á sunnudaginn megi gera ráð fyrir að áhrif verkfallanna verði orðin sýnileg hjá Icelandair.
„Við erum líka að sjá það að hótel eru að loka um helgina hér á höfuðborgarsvæðinu þannig að það myndast bara grafalvarlegt ástand ef ekki verður brugðist við. Ég trúi ekki öðru en það verði brugðist við með einhverjum hætti,“ segir Bogi og er svo viss um það að hann ítrekaði þessa trú sína margoft í viðtalinu við fréttastofu, sem má horfa á í spilaranum hér að neðan.
Bogi segir ferðaþjónustuna ekki mega við þessu nú þegar hún er enn að ná vopnum sínum eftir Covid.
„Að fá þetta í andlitið yrði gríðarlegt áfall.“
Þá séu farþegar Icelandair farnir að hringja inn með spurningar vegna verkfallanna. Staðan sé grafalvarleg.
„Við erum með yfir þrjú þúsund starfsmenn en þetta er ekki síður alvarlegt fyrir íslenska ferðaþjónustu og íslenskt hagkerfi. Ferðaþjónustan er hér burðarás í hagkerfinu. Ferðaþjónustan er enn að ná vopnum sínum eftir tvö ár af Covid. Þess vegna get ég varla hugsað þetta til enda og trúi ekki að það verði úr þessu.“