Beit lögreglumann þegar afskipti voru höfð af honum Eiður Þór Árnason skrifar 28. janúar 2023 07:48 Nokkuð var um að vera í miðborginni í gærkvöld og nótt. vísir/vilhelm Einstaklingur var handtekinn grunaður um hótanir og líkamsárás í Hlíðum í Reykjavík. Beit sá lögreglumann þegar afskipti voru höfð af honum, af því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingurinn var í kjölfarið vistaður í fangageymslu í tengslum við rannsókn málsins.
Nokkur fjöldi mála kom inn á borð lögreglu í gærkvöld og nótt en laganna verðir fóru meðal annars í eftirlit á nokkra veitinga- og skemmtistaði í miðborg Reykjavíkur. Á einn staður von á kæru eftir að hafa nýtt sér þjónustu réttindalauss dyravarðar. Tilkynnt var um hugsanlegan eld í bílastæðahúsi í miðborginni en sú tilkynning reyndist ekki á rökum reist þegar upp var staðið. Ók á gangandi vegfaranda Að sögn lögreglu var ekið á gangandi vegfaranda í miðborginni og var ökumaður bifreiðarinnar handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Meiðsli eru sögð minniháttar en sá slasaði var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Sömuleiðis var annar einstaklingur fluttur á slysadeild eftir að hann féll af rafhlaupahjóli. Tilkynnt var um þjófnað úr verslunum í Múlum auk Háaleitis- og Bústaðahverfi. Í báðum tilvikum voru hinir grunuðu látnir lausir að lokinni skýrslutöku. Að venju var einnig nokkuð um að ökumenn væru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna eða án ökuréttinda. Þá voru skráningarmerki tekin af nokkrum bifreiðum vegna vanrækslu á aðalskoðun.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira