Erling frá Deloitte til Carbfix Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2022 10:04 Erling Tómasson viðskiptafræðingur og endurskoðandi. Aðsend Erling Tómasson viðskiptafræðingur og endurskoðandi hefur verið ráðinn til að stýra rekstri og fjármálum Carbfix. Hann hefur nú þegar tekið til starfa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Carbfix. Þar segir að Erling hafi áður verið meðeigandi hjá Deloitte þar sem hann hafi sinnt fjármála- og upplýsingatækniráðgjöf, meðal annars til nýsköpunarfyrirtækja. „Hjá Deloitte bar Erling m.a. ábyrgð á ráðgjöf í tengslum við kaup og sölu fyrirtækja og nýtingu upplýsingtækni til að stuðla að skilvirkum rekstri. Erling starfaði í átta ár í Svíþjóð, sem fjármálastjóri tveggja fyrirtækja í örum vexti og síðar hjá Deloitte í Stokkhólmi. Þar áður var Erling meðeigandi hjá Deloitte Íslandi,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Erling að Carbfix sé ákaflega spennandi fyrirtæki, enda brautryðjandi í þróun nýrra lausna til varanlegrar kolefnisförgunar. „Það liggur fyrir að slíkar lausnir eru nauðsynlegar til að ná loftslagsmarkmiðum heimsins og ég hlakka mjög til að taka þátt í áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Erling. Um Carbfix segir að félagið hafi í tíu ár, eða allt frá árinu 2012, fangað CO2 frá Hellisheiðarvirkjun, blandað það ferskvatni og dælt ofan í basaltjarðlög þar sem það umbreytist í stein með náttúrulegum efnahvörfum. „Hefur sú aðferð til varanlegrar og öruggrar förgunar á CO2 vakið heimsathygli. Fyrr í sumar var tilkynnt að verkefni Carbfix um Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir CO2 í Straumsvík, væri eitt af 17 verkefnum sem hljóta styrki upp á alls 1,8 milljarða evra frá Nýsköpunarsjóði Evrópu (Innovation Fund).“
Vistaskipti Loftslagsmál Coda Terminal í Hafnarfirði Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira