Skemmdir á gasleiðslum færa átökin nær Íslandi Heimir Már Pétursson skrifar 29. september 2022 13:10 Flugsveitir annarra NATO ríkja sinna reglulega flugrýmisgæslu frá Keflavíkurflugvelli og þar fer fram ratsjáreftirlit alla daga ársins með umferð flugvéla og skipa í nágrenni Íslands. Vísir Forsætisráðherra segir stjórnvöld fylgjast grannt með atburðarás stríðsins í Úkraínu og nú síðast skemmdarverkum á gasleiðslum í Eystrasalti sem færi átökin nær Íslendingum. Framlög til varnarmála hefðu verið aukin og mikilvæt væri að tryggja netöryggi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar hóf sérstaka umræðu um öryggis- og varnarmál á Alþingi í morgun. Hún sagði stríð Rússa gegn Úkraínu hafa gerbreytt stöðu heimsmála. Þetta væri árás á saklaust fólk í Úkraínu en einnig árás á lýðræðið sjálft og sjálfstæði ríkja. Breyttar aðstæður kölluðu á stóraukið samstarf vestrænna lýðræðisríkja og þar væri Ísland engin undantekning. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir mikilvægt að Íslendingar auki samstarfið innan NATO og efli varnarsamninginn við Bandaríkin.Vísir/Vilhelm „Það er alveg ljóst að aðgerðir Íslands í öryggis- og varnarmálum verða nú að taka mið af breyttri heimsmynd og nýjum ógnum vestrænna lýðræðisþjóða. Í þessu felst meðal annars virkara samstarf í gegnum tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og aukin þátttaka okkar í borgaralegum verkefnum NATO,“ sagði Þorgerður Katrín. Hún spurði hvernig stjórnvöld sæju fyrir sér að Ísland léti meira til sín taka innan NATO samstarfsins. „Og það þarf líka að gera varnarsamstarfið við Bandaríkin virkara. Tryggja meðal annars að varnarsamningurinn taki með ótvíræðum hætti á netöryggi og tryggi órofið samband Íslands við umheiminn. Á sviði flutninga, orkuöryggis, fjarskipta, svp dæmi séu nefnd,“ sagði formaður Viðreisnar. Rússar hafi ítrekað verið að kortleggja sæstrengina við Ísland, nú síðast í ágúst. Skemmdir á gasleiðslunum í Eystrasalti gerðu þetta mál enn mikilvægara. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók undir með formanni Viðreisnar að innrás Rússa í Úkraínu fæli í sér breytingar á öryggismálum á heimsvísu og þar væru Íslendingar ekki undanskyldir. Þjóðaröryggisstefna Íslands frá 2016 sem meðal annars fól í sér stofnun þjóðaröryggisráðs hefði sannað gildi sitt. Bandaríkin, NATO og íslensk stjórnvöld hafa sett milljarða í fjárfestingar á Keflavíkurflugvelli á undanförnum árum. Hér er ein af kafbátaleitarflugvélum Bandaríkjahers í nýuppgerðu flugskýli Landhelgisgæslunnar á öryggissvæði flugvallarins.Vísir/HMP Katrín sagði að nú væri unnið að uppfærslu á mati ráðsins á þjóðaröryggismálum í ljósi innrásarinnar. Framlög til varnarmála hefðu verið aukin verulega á síðasta kjörtímabili. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld fylgjast grannt með atburðarás átakanna í Úkraínu og hafi brug'ðist við þeim.Vísir/Vilhelm „Við höfum líka verið að auka framlög til netöryggismála. Sú áhersla fellur ekki af himnum ofan. Heldur metum við það svo að þar sé raunveruleg hætta á ferð. Því hafa framlög til þeirra verið markvisst aukin,“ sagði forsætisráðherra. Skemmdarverk á gasleiðslum í Eystrasalti færðu atburðarásina nær Íslendingum. „Og við höfum fylgst grannt með þessum atburðum og verið í samskiptum við okkar nágrannaríki um aðgerðir og viðbúnað. Við munum bregðast við í samræmi við þau gögn sem við fáum. Ég vil nefna það sérstaklega í þessu sambandi að það er mjög mikilvægt að við treystum betur í sessi varasamband um gervihnetti og ráðumst í endurnýjun á ratsjár og fjarskiptakerfum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir.
NATO Alþingi Öryggis- og varnarmál Keflavíkurflugvöllur Bandaríkin Innrás Rússa í Úkraínu Nord Stream-leiðslurnar í Eystrasalti Tengdar fréttir Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. 29. september 2022 07:30 Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. 28. september 2022 14:46 Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. 28. september 2022 14:36 Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. 27. september 2022 19:52 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Svíar fundu fjórða lekann og Rússar benda á Bandaríkjamenn Sænska landhelgisgæslan hefur fundið fjórða gaslekann á Nord Stream gasleiðslunum, samkvæmt Svenska Dagbladet. Blaðið hefur eftir talsmanni landhelgisgæslunnar að tveir af lekunum fjórum séu í sænskri lögsögu en hinir tveir eru í danskri lögsögu. 29. september 2022 07:30
Leppstjórar biðja Pútín um innlimun Leppstjórar Rússlands í Luhansk- og Donetsk-héruðum hafa beðið Vladimír Pútín, forseta Rússlands, um að lýsa yfir innlimun héraðanna og annarra í rússneska sambandsríkið. Búist er við því að Pútín muni lýsa yfir innlimuninni á komandi dögum. 28. september 2022 14:46
Telja gasleiðslurnar geta skemmst varanlega Óttast er að rússnesku gasleiðslurnar tvær í Eystrasalti kunni að skemmast varanlega eftir skemmdarverk sem virðast hafa verið unnin á þeim. Þýski sjóherinn ætlar að taka þátt í rannsókn á lekanum. 28. september 2022 14:36
Danir telja sprengingarnar hafa verið skemmdarverk Forsætisráðherra Danmerkur sagði á blaðamannafundi fyrr í kvöld að dönsk yfirvöld telji að sprengingarnar tvær, sem ollu leka á Nord stream gasleiðslunum í gær, hafi verið skemmdarverk. Hún sagðist þó ekkert geta gefið upp um hverjir eru taldir standa að baki skemmdarverkum. 27. september 2022 19:52