Á vefsíðu Forsetaembættisins sendir Forseti Íslands íbúum Blönduóss kveðju vegna voðaatburðarins um nýliðna helgi.
Í bréfi sem forseti sendi til Guðmundar Hauks Jakobssonar, forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar, segir „að á þessari sorgarstundu hugsi Íslendingar til heimafólks þar og allra sem nú eiga skilið stuðning og samúð.“
Einnig biður hann forseta sveitarstjórnar að koma á framfæri þökkum til allra sem sinnt hafa löggæslu, hjúkrun og áfallahjálp á vettvangi.
Stjórnmálamenn hugsa til íbúa Blönduóss
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, skrifaði færslu á Facebook í dag þar sem hún sagði ekki annað hægt en „að tárast yfir ávarpi Guðmundar Hauks Jakobssonar“ þegar hann bað um stuðning þjóðarinnar.
Þá segir hún að hugur „okkar allra sé hjá þeim sem eiga um sárt að binda sem og öllum íbúum Húnabyggðar“ og að mestu skipti „að halda vel utan um hvert annað og standa saman í sorginni.“
Fleiri stjórnmálamenn hafa tjáð sig um atburðinn voveiflega.
Í færslu sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, skrifaði á Facebook sagði hún „Megi allt gott umvefja fallega samfélagið á Blönduósi og Húnabyggð allri í þessum hrikalegu aðstæðum.“ Enn fremur sagðist hún viss um að með tímanum tækist samfélaginu að vinna úr þessum atburðum í krafti smæðar sinnar.
Þá tók Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, sér sérstakan tíma til að skila kveðjum til íbúa Blönduóss í viðtali við fréttamann Stöðvar 2 um ótengt mál.
Samúðarkveðjur frá sveitarfélögum
Kveðjur hafa borist einnig borist frá ýmsum sveitarfélögum til íbúa Blönduóss.
Fyrir hönd íbúa Skagafjarðar sendi sveitarstjórn Skagafjarðar innilegar samúðarkveðjur til Blönduóss. Jafnframt sagði sveitarstjórnin í kveðjunni að hugur Skagfirðinga væri hjá „okkar kæru nágrönnum og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna atburðanna.“
Jafnframt sendi bæjarstjórn Akureyrar samúðarkveðjur til „allra þeirra sem eiga um sárt að binda eftir þá voveiflegu atburði sem áttu sér stað á Blönduósi í gærmorgun.“ Þar segir að engin orð fái lýst sorg og vanmætti bæjarstjórnarinnar gagnvart „svo skelfilegum atburði“ og að þau hugsi „með hluttekningu og hlýhug“ til vina sinna á Blönduósi.
Einnig sendi sveitarstjórn Húnaþings vestra kærleikskveðjur til Blönduóss þar sem þau sögðust harmi slegin og að hugur þeirra sé hjá öllum íbúum Húnabyggðar.
