Áður en nýr samningur var tilkynntur hafði verið smá óvissa um framtíð LeBron þar sem hann hafði gefið út að hann vildi spila með syni sínum áður en skórnir færu upp í hillu. Það gæti enn verið að Lebron yfirgefi Lakers þegar samningurinn, sem gildir til tveggja ára, rennur út.
Samningurinn færir LeBron 97 milljónir Bandaríkjadala (13,5 milljarða íslenskra króna) í vasann. Þá er svokallaður „player option“ í samningnum sem þýðir að LeBron getur í raun sjálfur ákveðið hvort hann verði hjá Lakers til 2025 eða semji við annað lið þegar þar að kemur. Það gæti gert það að verkum að hann fari til smærra liðs til að spila með syni sínum.
Samningurinn gerir LeBron að launahæsta leikmanni í sögu deildarinnar. Samtals mun LeBron fá greiddar 532 milljónir Bandararíkjadala fyrir tíma sinn í deildinni. Aðeins er um að ræða laun sem körfuboltamaður, hann hefur svo þénað álíka mikið í gegnum hinar ýmsu fjárfestingar og auglýsingasamninga.
LeBron has agreed on a 2-year contract extension with the Lakers worth $97.1M that'll include a player option for the '24-25 season. The deal also include a 15% trade kicker and he now surpasses KD as the highest earner in NBA history with $532M in guaranteed money. #OriginSport pic.twitter.com/e4bXirXO09
— Carol Radull (@CarolRadull) August 18, 2022
Lakers misstu af úrslitakeppninni á síðasta tímabili, aðallega vegna meiðsla LeBron James og Anthony Davis. Verði þeir tveir heilir í vetur má ætla að liðið komist í úrslitakeppnina og LeBron haldi áfram að skrá sig á spjöld sögunnar.
Þessi ótrúlegi íþróttamaður er fara hefja sitt 20. tímabil í NBA deildinni. Hann er sem stendur í öðru sæti yfir stigahæstu leikmenn í sögu deildarinnar. Reikna má með að LeBron brjóti það met í vetur fari svo að hann haldist heill heilsu.
Raunar má reikna með að hann verði langstigahæsti leikmaður deildarinnar þegar skórnir fara loks upp í hillu árið 2024 eða 2025. Hversu margir hringarnir verða á þeim tíma, það verður bara að koma í ljós.