Skoðun

ASÍ og stór­fyrir­tæki verða að hemja sig, enda bara 1% af at­vinnu­lífinu

Sigmar Vilhjálmsson skrifar

Aukin verðbólga, þensla á vinnumarkaði, hátt fasteignaverð, stríð í Evrópu og vaxandi óvissa í efnahagsmálum einkennir ástand samfélagsins um þessar mundir. Horfur hafa oft verið betri í aðdraganda kjarasamninga en nú. Þegar hætta á víxlverkandi áhrifum verðbólgu og launahækkana bætast við, má segja að aðilar vinnumarkaðarins standi frammi fyrir eins konar ómöguleika í komandi kjarasamningum.

Ómöguleikinn birtist fyrst og fremst í því að við erum að fara í kjarasamninga sem mega ekki leiða af sér launahækkanir. Minna má í þessu sambandi á, að frá síðustu kjarasamningum hafa laun hækkað um fjórðung og launavísitalan um 7%-8%. Segja má að launahækkanir hafi verið teknar út „fyrirfram“, þ.e. búið sé að greiða þær launahækkanir sem innstæða er fyrir innan hagkerfisins í bili.

Þetta þýðir á mannamáli að komandi kjarasamningar verða að snúast um getu fyrirtækja til að takast á við það umhverfi sem blasir við og einblína á að auka kaupmátt fremur en krónutölu eða prósentu hækkanir launa. Það verður á herðum lítilla og meðalstórra fyrirtækja að halda verðbólgu niðri.

Það eru hagsmunir lítilla og meðalstórra fyrirtækja að kaupmáttur launafólks aukist, enda eru viðskiptavinir lítilla og meðalstóra fyrirsækja oftar en ekki launþegar á Íslandi.

Þessi ómöguleiki er flestum skýr. Ríkisstjórnin hefur sem dæmi hvatt verkalýðshreyfinguna eindregið til að stilla launakröfum í hóf og allir helstu álitsgjafar innan hagfræðinnar keppast við að benda á afleiðingar þess fari launaliðurinn úr böndunum í komandi kjarasamningum, eins og því miður flest bendir til á þessari stundu að gerist.

Þá beinast spjótin ekki eingöngu að launþegum og launakröfum þeirra. Stórfyrirtæki verða einnig að hemja sig í arðgreiðslum og launagreiðslum æðstu stjórnenda. Hafa sífellt fleiri verið að taka upp þennan punkt, að ekki sé ásættanlegt að þessi afmarkaði fyrirtækjahópur hleypi með jöfnu bili upp vinnumarkaðnum með ofurarðgreiðslum og ofurlaunum, sem eiga sér enga stoð í íslenskum veruleika.

Lítil og meðalstór fyrirtæki eru 99% allra fyrirtækja á Íslandi og eru að greiða 70% af öllum launagreiðslum hér á landi. Í þessum fyrirtækjum er ekki að finna ofurhagnaði og ofurbónusa. Þessi hluti atvinnulífsins þarf að hafa rödd við borðið í komandi kjarasamningum. Annað er hreinlega galið.

Höfundur er formaður Atvinnufjelagsins.




Skoðun

Sjá meira


×