Innlent

Segist taka undir áhyggjur ráðherra og Isavia um að ný byggð ógni flugöryggi

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hildur Björnsdóttir skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Hildur Björnsdóttir skipar 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Bjarni Einarsson

Leiðtogi sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningunum, Hildur Björnsdóttir, segist styðja flugvöll í Vatnsmýri meðan ekki finnst annar jafngóður kostur. Oddviti Miðflokksins, Ómar Már Jónsson, segir sinn flokk þann eina sem ætli sér að standa vörð um flugvöllinn.

Í fréttum Stöðvar 2 sagði oddviti Miðflokksins sinn flokk sér á báti í flugvallarmálinu.

„Við erum bara þar í dag að Miðflokkurinn er eini flokkurinn sem ætlar sér að standa vörð um flugvöllinn í Vatnsmýri,“ segir Ómar Már Jónsson.

Ómar Már Jónsson skipar 1. sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík.Arnar Halldórsson

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, tekur ekki undir þetta.

„Það er nú stefna sjálfstæðismanna að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri, þar til annar jafngóður staður hefur fundist. Þannig að ég get nú ekki alveg tekið undir með miðflokksmönnum þarna,“ segir Hildur.

Miðflokksmaðurinn vitnar til fundar sem Samtök um bíllausan lífsstíl efndu til í síðasta mánuði. Kjarninn segir að þar hafi aðeins frambjóðandi Miðflokksins tekið flugvöll fram yfir byggð í Vatnsmýri.

Framsóknarmaðurinn Einar Þorsteinsson hafi þó haft sama fyrirvara og Hildur og sagt að ef nýr staður fyndist fyrir flugvöll væri frábært að byggja í Vatnsmýrinni.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra lýsti því yfir í viðtali á Reykjavíkurflugvelli í gær að borgin fengi ekki meira af landi flugvallarins fyrr en jafngóður eða betri flugvallarkostur væri uppbyggður.Ívar Fannar Arnarsson

Formaður Framsóknarflokksins, innviðráðherrann Sigurður Ingi, var hins vegar skýr með það í gær að borgin fengi ekki að byggja í Skerjafirði. 

En hver er afstaða Hildar til Nýja Skerjafjarðar?

„Við höfum stutt einhverja uppbyggingu í Skerjafirði, bara látlausa uppbyggingu. En þetta magn, sem nú er kynnt, er auðvitað gríðarlega mikið. Og það gengur í rauninni gegn flugvallarsvæðinu og það ógnar flugöryggi á svæðinu sömuleiðis.

Þannig að ég tek undir með ráðherra, og ég tek undir með Isavia, áhyggjur þeirra, sömuleiðis,“ svarar Hildur.

Hún er þó ekki tilbúin að taka undir þá afstöðu Sigurðar Inga að frekara land verði ekki tekið af flugvellinum á meðan nýr er ekki kominn.

Séð yfir svæðið í Skerjafirði sem borgarstjórnarmeirihlutinn vill leggja undir íbúðabyggð.

„Ég hef ekki séð afdráttarlausa afstöðu Sjálfstæðisflokksins til flugvallarins. Og ég hef dálítið verið að leita eftir því; hvar er þessi stuðningur við flugvöllinn? Og ég sé hann ekki. Ekki nema hjá okkur, Miðflokknum,“ segir Ómar.

En kemur til greina að mati Hildar að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkur?

„Ég hef ekki séð neina greiningu á þeim kosti. Ég myndi vilja sjá hana áður en ég tæki afstöðu til þess. En þangað til þá er hann auðvitað í Vatnsmýri,“ svarar Hildur Björnsdóttir.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Tókust á um lóðarúthlutun á landi innan flugvallargirðingar

Átök urðu á fundi borgarráðs Reykjavíkur í dag um þá tillögu borgarstjóra að úthluta fimm þúsund fermetra lóð og byggingarrétti fyrir allt að 140 íbúðir við Einarsnes 130. Lóðin er núna innan flugvallargirðingar í svokölluðum Nýja Skerjafirði á svæði sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra lýsti yfir í gær að borgin fengi ekki afhent meðan ekki væri kominn betri flugvallarkostur í stað Reykjavíkurflugvallar.

Ráðherra neitar að afhenda landið en borgarstjóri segist hafa afsalið

Innviðaráðherra neitar borginni um að byggja í Skerjafirði og segir að hún fái ekki meira af landi Reykjavíkurflugvallar fyrr en nýr flugvallarkostur sé fundinn og uppbyggður. Borgarstjóri hafnar því að flugöryggi verði raskað og minnir á að borgin eigi landið.

Atvinnuflugmenn brýna Isavia að verja rekstraröryggi flugvallarins

Öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna varar við því að nýjar húsbyggingar í Skerjafirði skapi hættu fyrir flugvélar á Reykjavíkurflugvelli með ókyrrð og sviptivindum. Isavia er hvatt til að setja fótinn niður og tryggja rekstraröryggi flugvallarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×