Ölvaðir menn til vandræða Atli Ísleifsson skrifar 2. maí 2022 07:05 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var nokkuð um ölvaða menn til vandræða, bæði á bílum og á tveimur jafnfljótum.
Þannig þurfti lögregla að vísa ölvuðum manni af hóteli í miðbænum og öðrum úr verslun í Hlíðunum. Þá var tilkynnt um aðila í annarlegu ástandi í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur sem hafði ráðist á öryggisverði þar. Sá var handtekinn og látinn gista fangageymslu. Þá barst lögreglunni tilkynning um gróðureld í Öskjuhlíð og var lið kallað út til að kanna málið. Kom síðan í ljós að um var að ræða eld í eldstæði á lokuðu svæði sem engin hætta var talin af. Einn var síðan handtekinn grunaður um líkamsárás og eignaspjöll og fékk hann einnig að gista fangageymslu og sömu sögu var að segja af nokkrum mönnum sem voru í bíl sem lögregla stöðvaði eftir að honum hafði verið ekið yfir hringtorg í Árbæ og skemmt gróður. Ökumaður og farþegar reyndu allir að flýja lögreglu á hlaupum en varð ekki kápan úr því klæðinu. Þeir voru allir vistaðir í fangageymslum en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum og einnig var hann án ökuréttinda.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Albanese segir Netanyahu í afneitun Erlent Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Innlent Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu Erlent Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Innlent Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Erlent Fleiri fréttir Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Sjá meira