Tryggvi stigahæstur í naumu tapi | Jón Axel og félagar töpuðu í framlengingu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. maí 2022 19:50 Tryggvi Snær Hlinason var stigahæsti maður vallarins í kvöld. Vísir/Getty Tryggvi Snær Hlinason og félagar hans í Zaragoza þurftu að sætta sig við naumt tveggja stiga tap er liðið tók á móti Bilbao í spænsku ACB-deildinni í körfubolta í kvöld, 82-80. Þá máttu Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Crailsheim Merlins þola tíu stiga tap eftir framlengdan leik gegn Ulm í þýsku deildinni, 100-90.
Tryggvi og félagar voru sterkari aðilinn í upphafi leiks gegn Bilbao og liðið leiddi með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta. Gestirnir söxuðu á forskotið fyrir hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 41-38, Zaragoza í vil. Gestirnir í Bilbao voru svo beittari eftir hlé þar sem liðið náði fimm stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann. Tryggvi og félagar náðu forystunni á ný stuttu fyrir leikslok, en gestirnir reyndust sterkari á lokakaflanum og unnu að lokum nauman tveggja stiga sigur, 82-80. Tryggvi var stigahæsti maður Zaragoza með 15 stig, en hann tók einnig sex fráköst og gaf eina stoðsendingu. Zaragoza situr í 13. sæti deildarinnar með 22 stig. Þá máttu Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Crailsheim Merlins þola tíu stiga tap í framlengdum leik gegn Ulm í Þýskalandi. Þegar flautað var til leiksloka var staðan jöfn, 89-89, og því þurfti að framlengja. Jón Axel og félagar skoruðu aðeins eitt stig í framlengingunni gegn ellefu stigum heimamanna og niðurstaðan varð því tíu stiga sigur Ulm, 100-90.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira