Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Samúel Karl Ólason skrifar 7. apríl 2022 23:40 Úkraínskir hermenn komu að líkum á víð og dreif um Bucha eftir að rússneskir hermenn hörfuðu þaðan. AP/Vadim Ghirda Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði.
Eftir að hersveitir Rússa hörfuðu frá bænum fannst minnst ein fjöldagröf í bænum og lík fundust á víða á götum Bucha. Einhverjir hinna látnu voru með bundnar hendur og eru konur og börn á meðal þeirra. Sagðist hafa skotið mann á hjóli Rússar þvertaka fyrir að nokkur almennur borgarar hafi orðið fyrir skaða meðan bærinn var hernuminn en vísbendingar eins og myndefni og vitnisburður annarra íbúa fer alfarið gegn því. Gervihnattamyndir sýna til að mynda að lík sáust á götum Bucha einungis nokkrum dögum eftir að Rússar tóku bæinn og sýnir drónamyndband að rússneskir hermenn skutu ítrekað úr tveimur skriðdrekum á mann á hjóli. Samkvæmt heimildum Spiegel má heyra á einni upptöku BND að rússneskur hermaður segist hafa skotið mann á hjóli. Á annarri heyrðist hermaður skipa öðrum að yfirheyra menn fyrst og skjóta þá svo. Málaliðar komu að ódæðunum Þá benda upplýsingar BND til þess að málaliðar Wagner Group hafi verið viðstaddir og mögulega framið ódæðin í Bucha. Þeim hópi, sem talinn er í eigu auðjöfursins Yevgeny Prigozhin sem er með náin tengsl við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hefur á undanförnum árum verið lýst sem skuggaher Rússlands og hafa málaliðar Wagner Group verið virkir í Mið-Austurlöndum og Afríku. Evrópusambandið segir Wagner Group hafa verið stofnað af Dmitry Utkin, fyrrverandi hermanni frá Rússlandi, sem er skreyttur nasista-húðflúrum og hefur verið myndaður við hlið Pútíns. Þá er málaliðahópurinn sagður vera kallaður Wagner Group vegna þess að Richard Wagner hafi verið eitt af uppháhalds tónskáldum Adolfs Hitler. Utkin er meðal annars sakaður um að hafa fyrirskipað pyntingu og morð á sýrlenskum liðhlaupa. Vitni í Bucha segja að upphaflega hafi ungir hermenn hernumið bæinn en seinna meir hafi eldri menn mætt á svæðið og árásum á borgara hafi fjölgað í kjölfarið. Morð mögulega daglegt brauð Heimildarmenn Spiegel segja upptökur BND gefa til kynna að morð á almennum borgurum eigi sér reglulega stað hjá rússneskum hermönnum. Þeir tali um slík morð eins og þau séu daglegur hluti af lífum þeirra og er talið að þau séu jafnvel liður í innrásaráætlunum Rússa og ætlað að hræða Úkraínumenn og draga úr baráttuvilja þeirra. Aðrar upptökur sem verið er að greina eru sagðar gefa til kynna að sambærileg ódæði hafi verið framin víðar og þá sérstaklega í og við Maríupól, sem Rússar hafa setið um frá því í upphafi innrásarinnar.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Þýskaland Tengdar fréttir Kuleba segir Rússa undirbúa tangarsókn í Donbas í anda seinni heimsstyrjaldar Utanríkisráðherra Úkraínu segir Vesturlönd ekki hafa tíma til bollalegginga. Auki þau ekki hernaðaraðstoð sína við Úkraínu á næstu dögum verði það of seint. Rússar hafi þegar byrjað stórsókn sína í Donbas sem verði á svipaðri stærð og verstu bardagar síðari heimsstyrjaldarinnar. 7. apríl 2022 20:47 Aðeins í annað sinn í sögunni sem landi er vikið úr Mannréttindaráðinu Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að víkja Rússum úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir gróf og kerfisbundin brot á mannréttindum en 93 greiddu atkvæði með tillögunni, 24 greiddu atkvæði á móti, og 58 sátu hjá. Þetta er í annað sinn sem landi er vikið úr ráðinu vegna brota á mannréttindum og í fyrsta sinn sem land sem á sæti í Öryggisráðinu er vikið úr ráði Sameinuðu þjóðanna. 7. apríl 2022 16:43 Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins. 7. apríl 2022 12:35 Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi. 7. apríl 2022 22:50 Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. 5. apríl 2022 15:52 Mest lesið „Hann fékk einfaldlega ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda“ Innlent Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Erlent „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Erlent Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Erlent Sitjandi formaður dregur framboðið til baka á kjördag Innlent „Það virðist aldrei vera nein lausn í sjónmáli“ Innlent Stebbi í Lúdó látinn Innlent Ósætti með nýtt grenndargámasvæði: „Þetta er bara mikið áhyggjuefni“ Innlent Ölvaðir einstaklingar víða til vandræða Innlent Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Innlent Fleiri fréttir „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Stjórnvöld höfða mál á hendur Uber vegna mismununar gegn fötluðum Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Íslendingur fastur í Nepal: „Við erum búin að halda okkur inni allan tímann“ Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Boða hertar aðgerðir gegn afbrotaunglingum Pólland ekki verið nær stríði frá því í seinni heimsstyrjöldinni Herinn skakkar leikinn í Katmandú Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Hyggjast bólusetja kóalabirni gegn klamydíu Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Sjá meira
Kuleba segir Rússa undirbúa tangarsókn í Donbas í anda seinni heimsstyrjaldar Utanríkisráðherra Úkraínu segir Vesturlönd ekki hafa tíma til bollalegginga. Auki þau ekki hernaðaraðstoð sína við Úkraínu á næstu dögum verði það of seint. Rússar hafi þegar byrjað stórsókn sína í Donbas sem verði á svipaðri stærð og verstu bardagar síðari heimsstyrjaldarinnar. 7. apríl 2022 20:47
Aðeins í annað sinn í sögunni sem landi er vikið úr Mannréttindaráðinu Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að víkja Rússum úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir gróf og kerfisbundin brot á mannréttindum en 93 greiddu atkvæði með tillögunni, 24 greiddu atkvæði á móti, og 58 sátu hjá. Þetta er í annað sinn sem landi er vikið úr ráðinu vegna brota á mannréttindum og í fyrsta sinn sem land sem á sæti í Öryggisráðinu er vikið úr ráði Sameinuðu þjóðanna. 7. apríl 2022 16:43
Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins. 7. apríl 2022 12:35
Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi. 7. apríl 2022 22:50
Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. 5. apríl 2022 15:52