Icelandair stefnir viðhaldsfyrirtæki vegna róar af rangri stærð Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. febrúar 2022 13:01 Lendingarbúnaðurinn gaf sig þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli. Mynd/RNSA Icelandair hefur stefnt kanadíska flugvélaviðhaldsfyrirtækinu Kelowna Flighcraft á þeim grundvelli að það hafi klúðrað viðhaldi á lendingarbúnaði Boeing-757 þotu félagsins, með þeim afleiðingum að vélinni hlekktist á í lendingu á Keflavíkurflugvelli fyrir tveimur árum.
Kandadíska ríkisútvarpið greinir frá og vísar í dómskjöl frá Hæstarétti Bresku-Kólumbíu ríkis í Kanada. Þar kemur fram að Icelandair krefjist þess að fá skaðabætur sem nemi kostnaði vegna skemmda á vélinni auk tekna sem glötuðust vegna atviksins. 160 farþegar og sex manna áhöfn voru um borð í Boeing 757-vélinni þegar hjólabúnaðurinn hægra megin gaf sig þegar vélinni var lent á Keflavíkurflugvelli þann 7. febrúar 2020. Engin slys urðu á fólki. Telja kanadíska fyrirtækið hafa sýnt af sér vanrækslu Rannsóknarnefnd samgönguslysa skilgreindi atvikið sem flugslys en mildi þykir að flugmönnum vélarinnar skyldi hafa tekist að halda vélinni á flugbrautinni, eftir að hjólabúnaðurinn gaf sig. Við rannsókn á vettvangi kom í ljós að ró vantaði í lendingarbúnaðinn, ásamt fylgihlut. Þessir hlutir fundust á flugbrautinni nálægt þeim stað þar sem vélin snerti brautina í lendingu. Við rannsókn á rónni kom í ljós að hún var of stór til að halda nægilega vel skrúfunni sem gekk inn í hana. Samkvæmt frétt CBC heldur Icelandair því fram að flugvirkjar Kelowna Flightcraft hafi notast við ranga tegund af ró þegar þeir sinntu viðhaldi vélarinnar undir lok ársins 2019. „Icelandair heldur því fram að lendingarbúnaður vélarinnar hafi gefið sig vegna vanrækslu eða brota á samningi við Kelowna Flightcraft,“ vitnar CBC í stefnuna. Flugvélin var nýkomin úr stórskoðun í Kanada, svokallaðri C-skoðun, þar sem skipt var um lendingarbúnað. Lendingarstellið sem sett var á hana kom frá fyrirtæki á Flórída. Halda því fram að flugvirkjar hafi notast við tímabundna flutningsró Samkvæmt frétt CBC heldue Icelandair því fram í stefnunni að lendingarbúnaðurinn hafi verið sendur frá Flóría til Kanada. Róin stóra sem gaf sig hafi aðeins verið sett á lendingarbúnaðinn til að varna því að hann myndi skemmast í flutningi til Kanada Róin mældist 1,617 tommur að innanmáli.Mynd/RNSA Icelandair heldur því fram að Kelowna Flightcraft hafi ekki notað þá ró sem átti að nota heldur hafi flugvirkjar þeirra hert flutningsrónna, þrátt fyrir að að hún hafi verið of stór og merkt með viðvörunarmiða. Í fréttinni kemur einnig fram að Kelowna hafi ekki svarað ásökunum Icelandair. Fyrirtækið sendi þó CBC stutta yfirlýsingu þar sem fram kemur að Icelandair sé mikilvægur viðskipavinur félagsins, og markmið fyrirtækisins sé að veita íslenska flugfélaginu, sem og öðrum félögum, framúrskarandi þjónustu. Boltinn sem gekk á móti rónni mældist að utanmáli 1,622 tommur, og var því lítið hald í rónni. Til að hann héldist nægilega fastur hefði róin að innanmáli þurft að vera á bilinu 1,5439 til 1,5539 tommur.Mynd/RNSA Þar kemur einnig fram að tryggingafélag fyrirtækisins sé að skoða málið og að ekki sé tímabært að tjá sig um það frekar.
Samgönguslys Kanada Icelandair Dómsmál Fréttir af flugi Tengdar fréttir Ró af rangri stærð talin orsök brotlendingar þotu Icelandair Ró af rangri stærð í lendingarbúnaði er talin meginorsök brotlendingar Boeing 757-þotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 7. febrúar síðastliðinn, samkvæmt bráðabirgðaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. 6. apríl 2020 10:39 „Lykilatriði að enginn slasaðist“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir það fyrir öllu að engin slys hafi orðið á fólki þegar lendingarbúnaður flugvélar félagsins brotnaði skömmu eftir lendingu. 7. febrúar 2020 18:57 Brotlending þotu Icelandair núna skilgreind sem flugslys Mildi þykir að flugmönnunum skyldi takast að halda flugvélinni á brautinni. Rannsóknin beinist að því hvernig staðið var að endurnýjun lendingarbúnaðar, sem skipt var um aðeins einum mánuði áður. 12. febrúar 2020 20:00 Farþegi segir vélina hafa „skoppað eins og skopparabolta“ Matthildur Sigurðardóttir, farþegi um borð í vél Icelandair sem var á leið til Keflavíkur frá Berlín, segir farþega hafa verið slegna við lendingu. Eftir að vélin hafði lent datt allt rafmagn út og dauðaþögn var um borð. 7. febrúar 2020 18:00 Flugvél Icelandair hlekktist á eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli Flugvél af gerðinni Boeing 757 með brotinn hjólbúnað er á leið til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Rauðu hættustigi hefur verið lýst á Keflavíkurflugvelli. 7. febrúar 2020 15:52 Mest lesið „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Fara fram á lögbann á Isavia Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Sjá meira
Ró af rangri stærð talin orsök brotlendingar þotu Icelandair Ró af rangri stærð í lendingarbúnaði er talin meginorsök brotlendingar Boeing 757-þotu Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 7. febrúar síðastliðinn, samkvæmt bráðabirgðaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa. 6. apríl 2020 10:39
„Lykilatriði að enginn slasaðist“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir það fyrir öllu að engin slys hafi orðið á fólki þegar lendingarbúnaður flugvélar félagsins brotnaði skömmu eftir lendingu. 7. febrúar 2020 18:57
Brotlending þotu Icelandair núna skilgreind sem flugslys Mildi þykir að flugmönnunum skyldi takast að halda flugvélinni á brautinni. Rannsóknin beinist að því hvernig staðið var að endurnýjun lendingarbúnaðar, sem skipt var um aðeins einum mánuði áður. 12. febrúar 2020 20:00
Farþegi segir vélina hafa „skoppað eins og skopparabolta“ Matthildur Sigurðardóttir, farþegi um borð í vél Icelandair sem var á leið til Keflavíkur frá Berlín, segir farþega hafa verið slegna við lendingu. Eftir að vélin hafði lent datt allt rafmagn út og dauðaþögn var um borð. 7. febrúar 2020 18:00
Flugvél Icelandair hlekktist á eftir lendingu á Keflavíkurflugvelli Flugvél af gerðinni Boeing 757 með brotinn hjólbúnað er á leið til lendingar á Keflavíkurflugvelli. Rauðu hættustigi hefur verið lýst á Keflavíkurflugvelli. 7. febrúar 2020 15:52