Innlent

1.135 greindust innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Um 42 þúsund manns hafa nú greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins.
Um 42 þúsund manns hafa nú greinst með COVID-19 frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

1.135 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og sextíu á landamærum.

Þetta kemur fram á síðunni covid.is. 44 prósent af sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu og 56 prósent utan sóttkvíar.

10.033 eru nú í einangrun vegna Covid-19 samanborið við 10.326 í gær. 10.063 eru nú í sóttkví, en voru 9.732 í gær. 770 eru nú í skimunarsóttkví.

4.462 einkennasýni voru greind, 1.314 sóttkvíarsýni og 980 landamærasýni.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 3.974, en var 3.874 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 475, samanborið við 481 í gær.

Alls hafa 42.530 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. 43 hafa látist á Íslandi vegna COVID-19 frá upphafi faraldursins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×