Starfsdagur er í öllum grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu í dag og er dagurinn nýttur til að undirbúa skólahald sem hefst aftur eftir jólafrí á morgun. Aldrei hafa jafn margir verið með kórónuveiruna og nú og kemur það til með að hafa áhrif á skólastarfið. Jón Péturs Zimsen skólastjóri í Melaskóla segir langflesta starfsmenn sína hafa mætt til vinnu í dag.
„Við erum ótrúlega heppin með það hvað eru fáir þarna í einangrun og sóttkví hjá okkur. Þannig það mættu flestir og menn eru mjög brattir að mæta til vinnu.“
Jón Pétur segir starfsfólk skólanna mjög útsett fyrir því að smitast af kórónuveirunni sér í lagi það starfólk sem sem starfar með yngstu börnunum.
„Þetta er kannski sú stétt í landinu sem er útsetnust fyrir smiti og getur lítið varið sig. Af því að aðrar stéttir eru þá með einhverjar varnir hvort sem það eru búningar eins og heilbrigðisstarfsmenn geta þá verið í eða menn eru að eiga við fullorðið fólk og þar sem menn geta verið með einhverskonar fjarlægðartakmarkanir.“
Hann telur að hægt verði að halda úti skólastarfi með eðlilegum hætti í sínum skóla á morgun en það geti þó breyst hratt.
„Staða getur breyst náttúrulega alveg ofboðslega hratt um leið og skólarnir fara af stað, þá held ég, ég held að ef þú myndir hringja í mig eftir viku þá myndi ég segja þér að það vantaði helming nemenda og 30% starfsmanna eru komnir í einangrun eða sóttkví en eins og staðan er núna þá held ég að dagurinn á morgun verði bara fínn og fólk hlakkar til að takast á við þetta. Meira að segja þeir sem eru hérna að kenna yngstu börnunum hafa í raun sýnt mikið æðruleysi. Það er meira en að segja að vita það að það er fullt af einkennalausu smiti út í samfélaginu núna. Samfélagssmit er mjög mikið og það er nánast öruggt að inni í kennslustofum þar sem fólk er þannig séð óvarið eru smitaðir einstaklingar sem að smita. En fólk er heyrist mér mjög tilbúið í það að ganga til verks og sinna þessum þarna krökkum sem eru framtíð landsins. “