Innlent

Ætla að stórefla Konukot: Heimilislausar konur fá glæný smáhýsi

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar og Halldóra Rannveig Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots segja að stórefla eigi starfsemi Konukots.
Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar og Halldóra Rannveig Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots segja að stórefla eigi starfsemi Konukots. Vísir/Egill

Stórefla á starfsemi Konukots og tvær heimilislausar konur flytja brátt í glæný smáhýsi á vegum borgarinnar.

Reykjavíkurborg áætlar að kostnaður vegna heimilislausra í borginni verði einn komma fjórir milljarða króna sem er tvöfalt meira en árið 2019. Á sama tíma hafa búsetuúrræði fyrir heimilislausa í borginni tvöfaldast og eru nú tæplega hundrað.

Heiða Björg Hilmisdóttir formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að aðstæður heimilislausra hafi stórbatnað á síðustu árum. 

„Fólk veit af neyðarskýlunum og er að nýta þau og nú er aldrei neinum vísað frá,“ segir Heiða. 

Velferðarráð ákvað að auki við styrki til Rótarinnar sem rekur Konukot um tæplega 30 milljónir á næsta ári. Framlag borgarinnar til verkefnisins verður því alls um 122 milljónir króna.

„Við erum að stórefla þjónustuna í Konukoti. Við erum að endurhanna húsnæðið og endurhugsa þjónustuna. Hér eru konur á öllum aldri og við viljum reyna að mæta þörfum þeirra betur,“ segir Heiða. 

Endurhanna á Konukot en um 40-50 konur leita þangað daglega.Vísir/Egill

Halldóra Rannveig Guðmundsdóttir forstöðukona Konukots segir þetta aukaframlag hafa gríðarlega jákvæð áhrif á starfsemina. Í hverjum mánuði leita um 40-50 konur í Konukot og um tólf sofa þar að jafnaði á hverjum degi.

„Þetta er mikill fengur. Með þessu getum við ráðið inn fleiri starfsmenn og hætt að reiða okkur á sjálfboðaliða sem skiptir miklu máli. Þá verður hægt að lagfæra húsnæðið. Það mun hafa afar jákvæð áhrif og konurnar verða ekki alveg ofan í hvor annarri eins og nú er,“ segir Halldóra. 

Tvær heimilislausar konur flytja brátt inn í tvö glæný smáhýsi.Vísir/Egill

Konukot mun einnig sinna þjónustu við konur sem flytja brátt í tvö glæný smáhýsi á sömu lóð. Fjöldi heimilislausra kvenna sótti um að fá að búa sér heimili í smáhýsunum og er verið að ákveða hverjar hreppa þau þessa dagana að sögn Halldóru. 

Smáhýsin við KonukotVísir/Egill

Tengdar fréttir

Kostnaður vegna heimilislausra tvöfaldast frá 2019

Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna heimilislausra hefur tvöfaldast frá árinu 2019. Ákveðið hefur verið að bæta við styrkjum til Konukots þannig að heimilið þurfi ekki að reiða sig á sjálfboðaliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×