Skoðun

Bar­átta Sól­veigar

Gunnar Karl Ólafsson skrifar

Þegar Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörinn formaður Eflingar í mars 2018 þá urðu ákveðin kaflaskil í verkalýðshreyfingunni. Áður en ég byrjaði að starfa innan hreyfingarinnar þá var ég með ofnæmi fyrir gagnrýni á hana, aðallega vegna þess að það var talað niður til hennar á ómálefnalegan hátt “Kelling sem er klikkuð“ og er ég enn með ofnæmi fyrir slíkri gagnrýni. Hún kom með ferskan blæ inn í umræðuna og skerpti á umræðunni fyrstu árin. Mikilvægasti punkturinn frá henni finnst mér að við eigum að hætta að láta láglaunafólk mæta afgangi.

Mikið hefur gengið á innan Eflingar, SGS og ASÍ síðan Sólveig tók við. Hún hefur í raun náð gríðarlegum árangri í að ná langflestum á móti sér þar sem að það kemur ekkert til greina annað en henni finnst, samvinnuviljinn er enginn. Ekki innan hreyfingarinnar né við ríkið og aðila vinnumarkaðarins, það er bylting í gangi hjá Sólveigu og hún ætlar alls ekki ekki að hlusta á neinn. Það að samskipti við þessa aðila eru ekki komin í algert frostmark má þakka helst formanni ASÍ, Drífu Snædal. Ef ekki væri fyrir hana er ég viss um að við værum mikið verr stödd en við erum í dag.

Sólveig setur starfsfólki sínu afarkosti á starfsmannafundi föstudaginn síðastliðin. „Þið skuluð taka þetta til baka opinberlega eða ég hætti“. Maður veltir fyrir sér hvort að hún hafi engar áhyggjur af þessari bókun trúnaðarmanna, áhyggjur af þessari upplifun starfsfólksins, sem starfsfólkið stendur við eftir þennan farsa hjá Sólveigu. Þetta er líka nánast allt starfsfólk sem að hún hefur ráðið. Af 58 starfsmönnum þá eru einungis 6 eftir af starfsfólkinu sem unnu hjá Eflingu þegar hún tók við. Hvers vegna neitar hún að horfa í eigin barm? Hvers vegna tekur hún ekki yfirlýsingar starfsmanna Eflingar alvarlega, hlustar á þær og reynir að bæta úr. Ef að allir eru orðnir hálfvitar í kringum þig ert þú þá kannski ekki hálfvitinn?

Yfirlýsing hennar er ömurleg kveðja til starfsfólks Eflingar og sýnir algert áhugaleysi á samvinnu, og stuðningsyfirlýsing stjórnar og varaformanns er putti í andlitið á starfsfólki. Starfsfólki sem langaði að laga þessa þætti innanhúss en það var ekki í boði. Vanþakklætið algert og ýjað að því að þetta hafi verið planað af utanaðkomandi öflum.

Ef að þetta væri annað félag utan hreyfingarinnar væru öll helstu andlit hreyfingarinnar búin að fordæma svona vinnubrögð hátt og snjallt.

Það má því segja að barátta Sólveigar endaði með sjálfsmarki. Það birtir vonandi til hjá Eflingu á komandi mánuðum, með nýjan formann sem leitar leiða til að samstilla Eflingu í þeirri baráttu sem er fram undan.

Höfundur starfar innan Verkalýðshreyfingarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×