Innlent

Tafir á umferð vegna áreksturs og malbikunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi árekstursins upp úr klukkan 16 í dag.
Frá vettvangi árekstursins upp úr klukkan 16 í dag. Aðsend

Malbikun hefur staðið yfir á hægri akrein á Vesturlandsvegi til vesturs, á milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar eftir hádegið í dag. Nokkur töf er á umferð inn í Reykjavík af þessum sökum. Sömuleiðis er töf á umferð út úr bænum vegna áreksturs.

Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að akreininni verði lokað meðan á framkvæmdum standi og hjáleiðir settar upp.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki um klukkan 19.

Árekstur varð á Vesturlandsvegi á móts við líkamsræktarstöðina Reebok Fitness um fjögurleytið. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu verður líkast til einn fluttur á slysadeild.

Bílaröðin á Vesturlandsvegi nær langa leið niður á Ártúnshöfða.Aðsend

Tafir eru á umferð í Ártúnsbrekku og upp í Mosfellsbæ af þessum sökum.

Fréttin var uppfærð klukkan 16:09 með upplýsingum um árekstur.

Bílaröðin náði aftur að Bauhaus um þrjúleytið í dag.Vísir/Egill
Það er fínasta veður til malbikunar í dag.Vísir/EGill

Umferð gengur hægt inn í borgina sökum malbikunar.Vísir/Egill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×