Matthías Orri og Darri úr KR í Körfuboltakvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. október 2021 15:30 Matthías Orri Sigurðarson og Darri Freyr Atlason á ferðinni með KR í fyrravetur. Samsett/Bára Fyrsti þátturinn af Körfuboltakvöldi verður á Stöð 2 Sport í kvöld og eins og hjá öllum liðum deildarinnar þá hafa orðið mannabreytingar milli tímabila.
Kjartan Atli Kjartansson er áfram við stjórnvölinn en þrír nýir liðsmenn bætast nú við og allir hafa þeir gert góða hluti í íslenskum körfubolta. Nýir liðsmenn Körfuboltakvölds í vetur verða þeir Matthías Orri Sigurðarson, Darri Freyr Atlason og Friðrik Pétur Ragnarsson. Matthías Orri og Darri Freyr hættu báðir eftir síðasta tímabil hjá KR þar sem KR-liðið fór alla leið í undanúrslit og sló Val út úr átta liða úrslitunum í ógleymanlegri seríu. Darri Freyr gerði Valskonur að Íslandsmeisturum og bikarmeisturum í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs félagsins áður en hann tók við KR-liðinu aðeins 26 ára gamall. Matthías Orri hefur spilað risahlutverk í deildinni undanfarin ár. Hann fór alla leið í lokaúrslitin með ÍR-ingum vorið 2019 en fór í framhaldinu heim í KR þar sem hann er uppalinn og spilaði þar undanfarin tvö tímabil. Friðrik Ragnarsson er einn af bestu sonum Njarðvíkur í körfuboltanum og vann á sínum tíma sjö Íslandsmeistaratitla og sex bikarmeistaratitla með félaginu. Friðrik hefur orðið Íslandsmeistari með Njarðvík sem leikmaður (1987, 1991, 1994, 1995), fyrirliði (1998), spilandi þjálfari (2001) og þjálfari (2002). Friðrik er líka annar í flestum leikjum og flestum stoðsendingum hjá Njarðvík í sögu úrvalsdeildar. Körfuboltakvöld hefst klukkan 20.00 á Stöð 2 Sport í kvöld.
Dominos-deild karla Körfuboltakvöld KR Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira