Vara við hörmulegum afleiðingum ef skuldaþakið brestur Kjartan Kjartansson skrifar 29. september 2021 15:44 Flokkadrættir í Bandaríkjunum hafa gert Bandaríkjaþing að miklu leyti óstarfhæft undanfarin ár. Nú gætu þeir leitt til þess að ríkissjóður lendi í greiðsluþroti og rekstur alríkisstofnana stöðvist. Vísir/Getty Fjármálaráðherra Bandaríkjanna varar við því að það hafi hörmulegar afleiðingar í för með sér samþykki Bandaríkjaþing ekki að hækka svonefnt skuldaþak ríkissjóðs. Enn liggur ekkert samkomulag fyrir um hækkun þaksins eða ný fjárlög sem eiga að taka gildi á föstudag.
Yfir Bandaríkjaþingi hangir að afstýra tveimur meiriháttar áföllum á allra næstu dögum og vikum. Nýtt fjárlagaár hefst á föstudag en þingið hefur enn ekki samþykkt ný fjárlög. Takist það ekki þarf að loka hluta alríkisstofnana og hafa hundrað þúsundir starfsmanna þeirra launalausa á meðan fjárveitingar til þeirra liggja ekki fyrir. Þá er þrátefli á milli Demókrataflokksins og Repúblikanaflokksins um hækkun lögbundins þaks á skuldir ríkissjóðs svo að hann lendi ekki í fordæmalausu greiðsluþroti um miðjan október. Inn í þessi stóru mál blandast aðgerðir demókrata til að koma helstu stefnumálum Joes Biden forseta í gegnum þingið. Demókrataflokkurinn er þó klofinn um örlög tveggja frumvarpa sem fela í sér útgjöld upp á annars vegar eina billjón dollara og hins vegar þrjá og hálfa billjón. Repúblikanar vilja reyna að þvinga demókrata til að standa einir að því að hækka skuldaþakið og bera fyrir sig að þeir vilji ekki gefa Biden óútfyllta ávísun til þess að auka ríkisútgjöld. Hækkun skuldaþaksins er þó nauðsynleg til þess að ríkissjóður Bandaríkjanna geti staðið við núverandi skuldbindingar sínar sem ríkisstjórnir bæði repúblikana og demókrata stofnuðu til. Þingmenn repúblikana felldu frumvarp demókrata um tímabundna fjármögnun alríkisstofnana fram í desember og hækkun skuldaþaksins á mánudag. Chuck Schumer, leiðtogi demókrata í öldungadeildinni, segir að mögulega muni deildin greiða atkvæði um frumvarp sem myndi skera á hnútinn tímabundið hvað fjárlögin varðar. Áhættusamasta störukeppnin í áratug Janet Yellen, fjármálaráðherra og fyrrverandi seðlabankastjóri, sagði bankanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings, í gær að afleiðingar þess að þingið samþykkti ekki að hækka skuldaþakið yrðu „hörmulegar“. Núverandi úrræði ráðuneytis hennar til að greiða skuldir ríkissjóðs yrði á þrotum í kringum 18. október. Varaði hún við því að áhrif greiðsluþrots fyndust alls staðar í hagkerfinu. Bótagreiðslum til eldri borgara seinkaði, hermenn lifðu við óvissu um hvort þeir fengju greitt og vextir á kreditkortum, bifreiða- og fasteignalánum hækkuðu, að sögn New York Times. „Þetta yrði hörmung fyrir bandaríska hagkerfið, fyrir alþjóðlega fjármálamarkaði og fjárhagslegu öryggi milljóna fjölskyldna og vinnandi fólks væri stefnt í hættu með því að fresta greiðslum,“ sagði Yellen. Fjárfestingabankinn Goldman Sachs sagði fyrr í þessum mánuði að störukeppnin um skuldaþakið væri sú áhættusamasta í áratug. Repúblikanar og demókratar hafa ítrekað teflt á tæpasta vað með skuldaþakið og fjárlög undanfarin ár, allt frá því að repúblikanar reyndu fyrst að nýta skuldaþakið til þess að binda hendur Baracks Obama, þáverandi forseta. Róttækir og íhaldssamir demókratar í hár saman Á sama tíma er núningur á milli róttækari og íhaldssamari demókrata um örlög frumvarpanna sem eiga að hrinda stefnumálum Biden forseta í framkvæmd. Hann vill annars vegar verja allt að 3,5 billjónum dollara í að efla velferðarkerfið og loftslagsaðgerðir og hins vegar setja eina billjón dollara í innviðauppbyggingu sem báðir flokkar eru sammála um að þörf sé á. Öldungadeildin samþykkti innviðafrumvarpið þvert á flokkslínur en nú hóta róttækir fulltrúadeildarþingmenn Demókrataflokksins að greiða atkvæði gegn því eftir að Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, gekk á bak orða sinna um að taka frumvörpin tvö fyrir saman. Íhaldssamari þingmenn demókrata vilja ekki samþykkja stóra útgjaldapakkann nema að hann verði skorinn verulega niður. Reuters-fréttastofan segir að fátt bendi til þess að stríðandi fylkingum takist að komast að samkomulagi um frumvörpin fyrir lok vikunnar.
Bandaríkin Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira