Fullyrðingar um lægsta verðið úrskurðaðar „ósannaðar og villandi“ Eiður Þór Árnason skrifar 17. september 2021 14:49 Orkan er í eigu Skeljungs. Vísir/Vihelm Orkan mátti ekki segja að fyrirtækið væri með lægsta verðið eða ódýrasta eldsneytið á höfuðborgarsvæðinu og í öllum landshlutum. Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur bannað Orkunni nota fullyrðingarnar í auglýsingum sínum.
Á eftir nokkrum fullyrðingum fylgdi hugtakið „skilyrðislaust“ og átti Orkan þar við að verðið væri aðskilið frá fyrirtækjum á borð við Costco þar sem áskriftarkort væri áskilið. Neytendastofa taldi að neytendur gætu sett þann skilning í fullyrðingarnar að Orkan væri án undantekninga ódýrari en keppinautar eða ávallt með lægsta verðið. Þau gögn sem lögð voru fram í málinu sönnuðu fullyrðingarnar ekki í þeim skilningi. Heildarmat Neytendastofu var því að allar fullyrðingar Orkunnar væru ósannaðar og villandi. N1 sagði enga innistæðu fyrir fullyrðingunum Neytendastofu barst kvörtun frá N1 vegna auglýsinga og markaðssetningar Orkunnar í febrúar á þessu ári. Kvörtunin sneri að auglýsingum Skeljungs með fullyrðingunum: „Lægsta verðið á höfuðborgarsvæðinu - skilyrðislaust“, „Ódýrasta eldsneyti landsins fæst hér - skilyrðislaust“ og „Orkan rekur 65 sjálfsagreiðslustöðvar um land allt. Orkan býður lægsta verðið í öllum landshlutum og ódýrasta eldsneyti landsins á Dalvegi, Reykjavíkurvegi og Mýrargötu á Akureyri -skilyrðislaust.“ Taldi N1 fullyrðingarnar brjóta gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu. Vísaði fyrirtækið meðal annars til skjáskota af samanburðarsíðunni GSMBensín sem sýna að ÓB hafi verið með lægsta eldsneytisverðið þann 18. febrúar og Dælan degi síðar. Olíufélagið vildi ekki sjá enn eina auglýsinguna með fullyrðingum um lægsta eldsneytisverð á landinu. n1 Deila um hugtakanotkun Í svörum Skeljungs, eiganda Orkunnar, til Neytendastofu kom meðal annars fram að önnur olíufélög hafi tekið upp orðalagið skilyrðislaust og því mætti það teljast til almennrar orðnotkunar sem ætti ekki að dyljast neytendum. N1 hafnar segir að skýringar Skeljungs endurspegli ekki almenna notkun hugtaksins eins og það birtist í auglýsingum Skeljungs. Varðandi skjáskotin af GSMBensín sagði Skeljungur að verðbreytingar væru tíðar og mögulegt að myndirnar hafi verið teknar á meðan vefsíðan væri í uppfærslu. Ekki væri vitað hvernig vefsíðan uppfæri upplýsingar sínar og því ekki ljóst hvort hún endurspegli ávallt raunverulegt verð. Að sögn Skeljungs fylgist fyrirtækið náið með verði keppinauta og styðst við gsmbensin.is, gasvaktin.is og eftirlit starfsmanna. Reynt sé að bregðast við verðbreytingum tafarlaust en það geti tekið allt að hálftíma. Reyni að lækka verð eins hratt og hægt er „Skjáskot N1 kunna því að hafa verið tekin í millibilsástandi þar sem að vefsíða gsmbensin.is hafi ekki verið uppfærð eða uppfærsla frá starfsmönnum Skeljungs ekki verið komin til skila. Því gæti verið að verð Skeljungs hafi aftur verið lægst nokkrum mínútum seinna þar sem ávallt sé brugðist við verðlækkunum keppinauta á höfuðborgarsvæðinu með eigin verðlækkunum,“ segir í bréfi Skeljungs til Neytendastofu. Skeljungur stendur við umræddar fullyrðingar og vill að olíufélögum verði veitt svigrúm til að bregðast við verðlækkunum keppinauta. Þá hefur félagið unnið að því að stytta viðbragðstíma enn frekar. Neytendastofa segir að svigrúmið sé takmörkunum háð og það beri að gera strangar kröfur þegar um afdráttarlausar fullyrðingar er að ræða. Taldi stofnunin að framlögð gögn sýni ekki með óyggjandi hætti að Skeljungur hafi lægsta eldsneytisverðið á öllum stöðvum sínum, miðað við alla keppinauta og í öllum tilvikum líkt og fullyrðingar Skeljungs gefa tilefni til að ætla.
Bensín og olía Auglýsinga- og markaðsmál Neytendur Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira