Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. september 2026 19:00 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa telur fimm manna hóp ekki eiga rétt á bótum frá ferðaskrifstofu eftir að hótelgistingu þeirra reyndist ábótavant. Hópurinn taldi sig eiga rétt á bótum og sagði hótelíbúðina hafa verið óhreina, ýmis tæki biluð, gat hafi verið á hurðinni og ljósaperur vantaði í mörg ljós.
Fimm manna hópur átti bókaða pakkaferð erlendis með ónefndri ferðaskrifstofu og greiddi annar sóknaraðilinn 571.825 krónur fyrir hann og annan í hópnum en hinn sóknaraðilinn greiddi 774.489 krónur fyrir sig og tvo aðra. Upphaflega hafi hópurinn ætlað á ónefndan áfangastað en eftir að flugfélagið hafi hætt að fljúga á áfangastaðinn var hópnum því boðin full endurgreiðsla eða önnur pakkaferð í staðinn. Önnur pakkaferð varð fyrir valinu, sem átti að kosta meira, en veitti ferðaþjónustufyrirtækið tuttugu þúsund króna afslátt af kaupverðinu. Þegar hópurinn, sem var á leið í fjölskyldufrí erlendis, kom á nýja áfangastaðinn hafi aðstaða hótelíbúðanna hins vegar verið ófullnægjandi. „Hafi íbúðirnar verið afar óhreinar og ýmis tæki biluð og hlutir skemmdir, til að mynda hafi klósettseta á baðherbergi verið brotin, gat verið á útidyrahurð og ljósaperur vantað í mörg ljós. Þá vísa sóknaraðilar til þess að engin þrif hafi farið fram í herbergjunum á gistitímanum, aðeins skipt um handklæði og búið um rúm,“ segir í úrskurðinum. Einnig hafi verið töluvert ónæði á næturnar sökum drykkjuskapar og óláta frá öðrum hótelgestum. Fengu að sjá sjö íbúðir Hópurinn hafði samband við ferðaskrifstofuna meðan á ferðinni stóð og kvartaði undan gistingunni. Þeim hafi verið boðið að skoða aðrar íbúðir á hótelinu en þau sögðu þær hafa verið í jafn slæmu eða jafnvel verra ásigkomulagi og því ekki séð tilganginn í því að skipta um íbúðir. Þá óskuðu þau eftir flutningi á annað hótel gegn greiðslu sanngjarns kostnaðar en því hefur ferðaskrifstofan hafnað nema gegn greiðslu sanngjarns kostnaðar. Í máli ferðaskrifstofunnar segir að umrætt hótel sé vinsælt fjögurra stjörnu hótel á góðum stað með snyrtilega innréttuðum hótelíbúðum. Það sé í miðbæ áfangastaðarins og hafi hópurinn dvalið þar á háannatíma svo hávaði frá öðrum gestum hafi ekki verið óeðlilegur. Þegar hópurinn kvartaði hafi þau samstundis haft samband við umboðsaðila sem sýndi hópnum sjö íbúðir sem voru betri að gæðum og á rólegri stöðum. Meðferðis hafði ferðaskrifstofan ljósmyndir teknar af starfsmönnum hótelsins af herbergjunum. Þeim hafi þá verið boðinn flutningur á önnur hótel gegn greiðslu aukagjalds. „Þá kveður varnaraðili að bætt hafi verið úr ýmsum ágöllum sem sóknaraðilar töldu vera á íbúðum þeirra á meðan á dvöl þeirra stóð auk þess sem aukaþrif hafi verið útveguð. Bendir varnaraðili jafnframt á að samskipti aðila hafi verið erfið.“ Hafnað um bætur Við yfirferð málsins tekur kærunefndin undir að ljósmyndir hópsins af hótelinu sýni að aðbúnaði hótelíbúðanna hafi verið nokkuð ábótavant. Þeim hafi verið boðinn flutningur og lagði hópurinn ekki fram sönnun á því að þær íbúðir hafi verið lakari gæðum. Einnig lá fyrir að starfsmennirnir brugðust við kvörtunum hópsins varðandi ýmis atriði tengd aðbúnaði íbúðanna með lagfæringu og frekari þrifum. „Með hliðsjón af öllu framangreindu og framlögðum gögnum telur kærunefndin að ekki sé unnt að fallast á kröfu sóknaraðila um afslátt af pakkaferðinni,“ segir í úrskurðinum og var því hópnum hafnað um bætur.
Úrskurðar- og kærunefndir Neytendur Íslendingar erlendis Mest lesið Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Hekla innkallar 2.610 bíla Lækka verð á þúsund vörum Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Hægst á verðhækkun á matvöru Krónan frystir verð til áramóta Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Tímamót hjá Heklu: Kveðja Laugaveginn eftir rúma sex áratugi Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný Sjá meira