Lið Philadelphiu hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn sem gerði Brooklyn Nets að komast upp fyrir þá á topp Austurdeildarinnar í fyrrinótt. 76ers gátu jafnað Nets á toppnum með sigri á Milwaukee Bucks en þeir síðarnefndu voru í þriðja sætinu, og gátu því stimplað sig rækilega inn í baráttuna um efstu sætin.
Það varð raunin þar sem Milwaukee, með Grikkjann Giannis Antetokounmpo fremstan í flokki, vann öruggan 132-94 heimasigur. Giannis var með 24 stig, 14 fráköst og sjö stoðsendingar en Bobby Portis kom sterkur inn af bekknum og var næst stigahæstur í liði Milwaukee. Dwight Howard var atkvæðamestur í liði Philadelphiu með tólf stig og tólf fráköst.
@Giannis_An34's 24 PTS, 14 REB, 7 AST in 3 quarters of play helps the @Bucks top PHI at home! #FearTheDeer pic.twitter.com/YUvpyP9UMq
— NBA (@NBA) April 24, 2021
Luka Doncic átti að venju fínan leik fyrir Dallas Mavericks er liðið vann 108-93 sigur á Los Angeles Lakers, en Dallas nálgast Lakers-liðið í töflunni með sigrinum. Tapið var það þriðja hjá Lakers í röð en sigur Dallas sá þriðji þeirra í röð.
Lakers leiddu lengi vel og náðu mest 17 stiga forskoti. Dallas vann muninn hægt og rólega upp þar sem miðherjinn Dwight Powell steig upp. Mikið opnaðist fyrir Powell við ítrekaða tvöföldun Lakers-varnarinnar á Luka Doncic en Powell var stigahæstur á gólfinu með 25 stig, þar af 12 í fjórða leikhluta. Doncic var með 18 stig og 13 stoðsendingar, auk átta frákasta. Anthony Davis var að spila sinn annan leik eftir meiðsli með liði Lakers og var stigahæstur þeirra með 17 stig.
The @dallasmavs top LAL behind @DwightPowell33's 25 PTS on 11-12 shooting from the field! #MFFL pic.twitter.com/8EhzZYKSnX
— NBA (@NBA) April 25, 2021
Vonir New Orleans Pelicans um sæti í umspili fyrir úrslitakeppnina veiktust í gær eftir naumt tveggja stiga tap, 110-108, fyrir San Antonio Spurs á heimavelli. Spurs hafa unnið 30 leiki líkt og Golden State Warriors, en þau lið verma neðstu tvö umspilssætin í Vesturdeildinni, það níunda og tíunda. New Orleans er sætinu neðar og hefur unnið fjórum leikjum færra.
DeMar DeRozan skoraði 32 stig fyrir San Antonio en hjá Pelicans var Zion Williamson með 33 stig og 14 fráköst.
.@DeMar_DeRozan steers SAS in NOLA!
— NBA (@NBA) April 25, 2021
32 PTS | 7 REB | 8 AST pic.twitter.com/yyaA2pajyR
New York Knicks eru á hvínandi siglingu austan megin en liðið vann sinn níunda sigur í röð, 120-103 sigur Toronto Raptors í Madison Square Garden. Julius Randle var með 31 stig og tíu fráköst fyrir Knicks en liðsfélagi hans RJ Barrett setti 25 stig og tók tólf fráköst. Fred VanVleet skoraði 27 stig fyrir Toronto, auk þess að gefa ellefu stoðsendingar, en félagi hans OG Anunoby skoraði sömuleiðis 27 stig.
D-Rose handles & drops in the floater! @Raptors 83@nyknicks 94
— NBA (@NBA) April 24, 2021
Early 4th on ESPN pic.twitter.com/IBBLshE0Mu
Úrslit næturinnar og helstu tilþrifin
New York Knicks 120-103 Toronto Raptors
Milwaukee Bucks 132-94 Philadelphia 76ers
Indiana Pacers 115-109 Detroit Pistons
New Orleans Pelicans 108-110 San Antonio Spurs
Miami Heat 106-101 Chicago Bulls
Dallas Mavericks 108-93 Los Angeles Lakers
Utah Jazz 96-101 Minnesota Timberwolves
Denver Nuggets 129-116 Houston Rockets