Innlent

„Má reikna með hellingi af nýjum veðurviðvörunum fyrir helgina“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það verður ansi hvasst víða á landinu síðdegis á morgun miðað við þetta vindaspákort Veðurstofunnar.
Það verður ansi hvasst víða á landinu síðdegis á morgun miðað við þetta vindaspákort Veðurstofunnar. Veðurstofa Íslands

Veðurspáin fyrir helgina er ekkert sérstök og að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands „má reikna með hellingi af nýjum veðurviðvörunum fyrir helgina“.

Núna eru gular viðvaranir í gildi um nánast allt land vegna norðaustan hríðarveðurs en flestar renna þær úr gildi í dag eða kvöld.

Varað er við veðri í öllum landshlutum í dag nema á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu en eftirfarandi segir til að mynda í viðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi á hádegi:

„Norðan 15-23 m/s með staðbundnar vinhviður um og yfir 35 m/s, einkum austan Öræfa. Ökumenn aki varlega, einkum ef ökutækin verða óstöðug í hvössum vindum.“

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag gangi á með norðanhríðarveðri á norðurhluta landsins en léttir smám saman til fyrir sunnan.

Jafnframt mun þó hvessa mjög suðaustan til með öflugum vindstrengjum og snörpum hviðum þegar líður á daginn.

„Ferðamenn eru því hvattir til að kanna veðurspár, viðvaranir og ástand vega áður en lagt er af stað í ferðalög.

Í nótt lægir víða og rofar til, en þar með er ekki allt fallið í ljúfa löð, því í fyrramálið fer að hvessa úr austri og þykkna upp. Bætir enn í vind eftir hádegi og gengur í austan- og norðaustanstorm með snjókomu eða skafrenningi um kvöldið. Mun hægari vindar og úrkomulítið norðaustan til.

Á pálmasunnudag snýst líklega enn í norðanátt með ofankomu, einkum á norðurhelming landsins og útlit er að áfram verði fremur kalt í veðri næstu daga.

Því má reikna með hellingi af nýjum veðurviðvörunum fyrir helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Norðan 15-23 m/s V-lands, en mun hægari vindar eystra. Víða snjókoma eða él, en úrkomulítið SA-lands. Norðan 10-18 m/s eftir hádegi, en 15-23 SA-lands.

Snjókoma með köflum eða él um landið norðanvert, en léttir smám saman til sunnan heiða. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum NA-lands.

Lægir víða í nótt og rofar til, en vaxandi austan- og norðaustanátt á morgun og þykknar upp, 18-25 og snjókoma með köflum annað kvöld, hvassast við fjöll syðra, en mun hægari NA-til. Hlýnar í veðri S-til.

Á laugardag:

Norðlæg átt, 8-15 m/s og dálítil él í fyrstu, en síðan vaxandi austanátt og þykknar upp, 18-25 m/s og snjókoma eða skafrenningu S-til um kvöldið, en hægara og úrkomulítið nyrðra. Frost 2 til 12 stig, en hlýnar syðst seinni partinn.

Á sunnudag (pálmasunnudagur):

Hvöss norðan- og norðvestátt með snjókomu eða éljagangi, en heldur hægara og úrkomulítið sunnan heiða. Frost 0 til 6 stig.

Á mánudag:

Norðvestlæg átt, allhvöss NA-til, en annars hægari. Éljagangur á N-verðu landinu, en léttskýjað syðra. Harðnandi frost.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir hægan vind, víða bjartvið talsvert frost, en dálítil él syðst.

Á miðvikudag:

Líklega stíf suðvestanátt, skýjað en úrkomulítið og hlýnandi veður.

Á fimmtudag (skírdagur):

Vísbendingar um norðvestanátt og kólandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×