Skoðun

Taka verður hröð og stór skref

Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Efnahagsleg áhrif Covid heimsfaraldursins og þær jarðhræringar sem hafa nú orðið á suðvesturhorninu sýna glögglega að tímabært sé að taka stór og hröð skref í uppbyggingu á landsbyggðinni og byggja undir aukna verðmætasköpun.

Uppbygging varaflugvalla

Fjármunir til uppbyggingu flugvalla hafa að mestu farið í Keflavíkurflugvöll og í ofanálag var 15 milljarða hlutafjáraukning afgreidd til ISAVIA 12.janúar 2021 sem virðist einungis eiga að fara í uppbyggingu tengt Keflavíkurflugvelli. Varaflugvellir hafa lengi setið á hakanum fyrir utan uppbyggingu sem er nú farin af stað á Akureyrarflugvelli en Egilsstaðaflugvöllur situr eftir sem er óásættanlegt. Jarðhræringarnar síðustu daga á suðvesturhorninu sýna okkur mikilvægi þess að hafa örugga varaflugvelli til staðar en við glímum við þá staðreynd að við erum langt á eftir íuppbyggingu varaflugvallafyrir Keflavíkurflugvöll.Tökum nú stór skref í þeirri uppbyggingu í þágu öryggissjónarmiða, ferðaþjónustu, vöruflutninga og aukinna lífsgæða.

Ferðaþjónustan

Ferðaþjónustan hefur verið gífurlega stór hluti verðmætasköpunar hér á landi með þeirri atvinnusköpun sem henni fylgir. Í Covid heimsfaraldrinum hefur orðið áherslubreyting hjá ferðamönnum en kannanir sýna að efst á lista erlendra ferðamanna eru ferðalög í víðerni náttúrunnar en ekki borgarferðir, eins og tíðkast hefur hingað til. Setjum myndarlega fjármuni í uppbyggingu "ferðamannasegla" á landsbyggðinni ogverðum tilbúin til að taka á móti bólusettum ferðamönnum þegar þeir fara að streyma til landsins út á land í sumar.

Grænar fjárfestingar

Græna orkan okkar er framtíðin og grundvöllur áhuga erlendra fyrirtækja á möguleikum til gagnavera, framleiðslu á rafhlöðum og vetnisframleiðslu sem gæti haft með sér þúsundir hátæknistarfa ef af verður. Landfræðilegar aðstæður eru mjög hagkvæmar á Íslandi og velja verður svæði án jarðhræringa sem leiðir okkur að landsbyggðinni.

Verðmætasköpun

Huga þarf að atvinnulífinu sem hefur þurft að bera þungar byrðar í þeim efnahagsþrengingum sem heimsfaraldurinn hefur haft í för með sér á sama tíma og starfskjör hafa stóraukist. Mikilvægt er að horfa til þess að atvinnulífinu verði veitt súrefni til að viðhalda sinni starfsemi, efla og skapa tækfæri fyrir fjölgun fjölbreyttra starfa og horfa til einföldunar regluverksins.

Lífsgæðin á landsbyggðinni

Sveitarfélögin þurfa einnig að einsetja sér í að byggja áfram upp góða þjónustu á landsbyggðinni, tryggja góða innviði, þjónustu, atvinnutækifæri, nægt húsnæði, leikskólapláss og afþreyingu. Skoska leiðin hefur einnig leitt til niðurgreiðslu flugs fyrir íbúa landsbyggðarinnar að þjónustu á vegum ríkisins í Reykjavík. Leggjumst öll á eitt við að bjóða upp á góð lífsgæði á landsbyggðinni þar sem tækifærin liggja og fjölskylduvænt umhverfi umlykur okkur öll.

Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.




Skoðun

Sjá meira


×