Myndir frá leitinni: Víðtæk leit hefur enn engan árangur borið Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 7. febrúar 2021 12:28 Hermenn hafa flogið þyrflum pakistanska hersins yfir svæðið í dag. Mynd/Aðsend Víðtæk leit að fjallgöngumönnunum John Snorra Sigurjónssyni, Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á fjallinu K2 hefur enn engan árangur borið. Stefnt er að því að leita af fullum þunga í dag alveg þar til dimmir.
Þeir félagar lögðu af stað upp K2 ásamt syni Ali, Sajid Sapara, á fimmtudagskvöldið. Strax um nóttina lenti Sajid í vanda og snéri við. Þegar hann sá þremenningana síðast um klukkan fimm aðfaranótt föstudagsins voru þeir við flöskuháls í um 8.200 metra hæð en fjallið er 8.611 metra hátt. Sjá má staðsetninguna hér á myndinni fyrir neðan. Græni hringurinn sýnir flöskuhálsinn þar sem John Snorri og félagar sáust síðast. Þeir áttu þá eftir um fjögur hundruð metra leið upp á toppinn.Mynd/Aðsend Ekkert hefur ekkert spurst til þremenningana síðan. Pakistanski herinn hefur stýrt umfangsmikilli leit á svæðinu í gær og í dag. Þyrlur hafa verið nýttar við leitina. Vonir standa til að hægt verði að fljúga flutningavél á vegum hersins yfir fjallið. Þá hafa gervihnattarmyndir verið notaðar til að reyna að finna John Snorra og félaga. Kalt hefur verið á svæðinu síðustu daga.Mynd/Aðsend Juan Pablo Mohr einn þremenninganna var í ferð sem fjallaferðaskrifstofan Seven Summit Treaks sá um skipulagningu á. Eigandi fyrirtækisins er einn þeirra sem tekur nú þátt í leitinni. Thaneswar Guragai samstarfsmaður hans segir leit enn í fullum gangi. „Í dag gerðum við leitaráætlun út frá öllum mögulegum stöðum þar sem þeir gætu hafa fallið eða týnst. Alla mögulega staði á að skoða þegar þyrlurnar fljúga yfir,“ segir Thansewar. Hér sést önnur af tveimur þyrlunum sem notuð er við leitina.Mynd/Aðsend Enn hafi þó ekkert sést til John Snorra og félaga. Hann segir kuldann gera leitina erfiða. Hann geti mælst allt að -75 gráður. Allir mennirnir séu þó reynslumiklir og í góðu formi og því séu allir enn að vona það besta. Það dimmi þó í Pakistan um tvö leytið að íslenskum tíma sem dragi úr möguleikum til leitar eftir það. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ræddi í gær við utanríkisráðherra Pakistans vegna leitarinnar. Hann segist þess fullviss um að pakistönsk stjórnvöld séu að gera hvað sem þau geta til að bjarga mönnunum. „Það er augljóst að þetta mál er í algjörum forgangi hjá þeim stjórnvöldum.“ Ein af þeim myndum sem teknar voru við leitina í dag. Mynd/Aðsend Nú eru liðnir hátt í þrír sólarhringar frá því að þremenningarnir lögðu af stað á toppinn. Mynd/Aðsend Þrátt fyrir kulda hefur skyggnið verið ágætt í dag. Mynd/Aðsend Fjallið þykir erfitt viðureignar.Mynd/Aðsend Hér má sjá aðra þyrluna fljúga yfir svæðið í dag. Mynd/Aðsend Leitin í dag var skipulögð í þaula. Mynd/Aðsend
Fjallamennska Nepal Pakistan John Snorri á K2 Tengdar fréttir „Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“ Þessi orð eru höfð eftir spænska rithöfundinum Miguel de Cervantes sem var uppi á 16. og 17. öld. Þessi orð valdi John Snorri Sigurjónsson fjallagarpur og birtir á veglegri heimasíðu sinni, johnsnorri.com. 7. febrúar 2021 07:13 Leit heldur áfram í birtingu Enn hefur ekkert spurst til Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans sem leitað hefur verið að á K2 í dag. Leit pakistanska hersins verður haldið áfram í dögun en um ríflega tveir sólarhringar eru liðnir síðan síðast heyrðist frá þeim. Aðstæður í fjallinu eru gríðarlega erfiðar og hefur frost farið vel yfir fjörutíu gráður í dag. 6. febrúar 2021 23:18 Trúa því að þeir séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá Umfangsmikil leit stendur nú yfir að fjallgöngumanninum John Snorra og tveimur félögum hans á fjallinu K2 í Pakistan en ekkert hefur heyrst til þeirra í á annan sólarhring. Þyrlur hersins hafa verið notaðar við leitina og reyna á að nýta gervihnetti. Fjölskylduvinur segir fjölskyldu og vini trúa því John Snorri og Ali, sem er með honum á fjallinu, séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá. 6. febrúar 2021 11:35 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira
„Til að takast hið ómögulega verður maður að reyna hið fáránlega“ Þessi orð eru höfð eftir spænska rithöfundinum Miguel de Cervantes sem var uppi á 16. og 17. öld. Þessi orð valdi John Snorri Sigurjónsson fjallagarpur og birtir á veglegri heimasíðu sinni, johnsnorri.com. 7. febrúar 2021 07:13
Leit heldur áfram í birtingu Enn hefur ekkert spurst til Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans sem leitað hefur verið að á K2 í dag. Leit pakistanska hersins verður haldið áfram í dögun en um ríflega tveir sólarhringar eru liðnir síðan síðast heyrðist frá þeim. Aðstæður í fjallinu eru gríðarlega erfiðar og hefur frost farið vel yfir fjörutíu gráður í dag. 6. febrúar 2021 23:18
Trúa því að þeir séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá Umfangsmikil leit stendur nú yfir að fjallgöngumanninum John Snorra og tveimur félögum hans á fjallinu K2 í Pakistan en ekkert hefur heyrst til þeirra í á annan sólarhring. Þyrlur hersins hafa verið notaðar við leitina og reyna á að nýta gervihnetti. Fjölskylduvinur segir fjölskyldu og vini trúa því John Snorri og Ali, sem er með honum á fjallinu, séu það sterkt teymi að það sé ástæða til að vera bjartsýn enn þá. 6. febrúar 2021 11:35