Viðskipti innlent

Öskurherferðin hlýtur virt verðlaun

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Mynd úr herferðinni Let it out eða öskurherferð Inspired by Iceland.
Mynd úr herferðinni Let it out eða öskurherferð Inspired by Iceland. Vísir/Íslandsstofa

Íslandsstofa hlaut í vikunni virt markaðsverðlaun hjá bandaríska fagtímaritinu Digiday fyrir öskurherferðina Let it Out síðasta sumar. Dómarar eru meðal annars frá bandarísku fjölmiðlunum CBS, New York Times, Bloomberg og Forbes. 

Herferðin snerist um að hvetja tilvonandi ferðamenn til að losa um covid-tengda streitu með því að taka upp öskur gegnum síma eða tölvu og fylgjast með því hljóma í íslenskri náttúru gegnum vefmyndavél. Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsstofu er þegar byrjað að undirbúa herferð fyrir næsta sumar.

Bandaríski fagmiðillinn Digiday veitir fyrirtækjum árlega verðlaun fyrir markaðsstarf og að þessu sinni fékk herferðin verðlaun fyrir hugmyndaauðgi og árangur.

 Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu segir þetta mikla viðurkenningu.

Sigríður Dögg Guðmundsdóttir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu segir þetta mikla viðurkenningu.

„Herferðin gekk vonum framar í sumar og náði til gríðarlega margra og þjónaði sínu hlutverki sem var að vekja athygli á áfangastaðnum og viðhalda samtali meðan fólk gat ekki verið að ferðast. Það er mjög gaman að fá þessa viðurkenningu fyrir þá fjölmörgu sem lögðu hönd á plóg við að vekja athygli á Íslandi,“ segir Sigríður.

Hún segir að markaðsstarf Íslandsstofu hafi verið í gangi í allan vetur. 

„Þessi herferð var fyrsti fasi í markaðsherferði Íslandsstofu, annar fasi var svo keyrður í desember og kallast Joy Scrolling og þessar markaðsherferðir hafa gengið út á að viðhalda áhuga á áfangastaðnum. Við erum svo að undirbúa herferð fyrir næsta sumar sem fer af stað þegar aðstæður leyfa,“ segir Sigríður sem vill ekki gefa upp um hvað sú herferð muni ganga út á. 

„Það er leyndarmál þar til hún fer í loftið,“ segir Sigríður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×