Þegar hann kom upp á yfirborðið, eftir um klukkustundar köfun, sá hann þyrlu Landhelgisgæslunnar, báta, slökkvilið og mikinn viðbúnað.
Upp úr klukkan tólf í dag barst nefnilega tilkynning um að manneskja hefði farið út í vatnið og voru björgunarsveitir, lögregla og sjúkraflutningamenn kallaðir til, auk kafara og áhafnar þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Í ljós hefur þó komið að tilkynningin var vegna Mikaels, sem var að kafa í Kleifarvatni, eins og hann hefur oft gert áður.
„Ég hugsaði strax hvort ég ætti að fara aftur ofaní,“ segir Mikael í samtali við Vísi. „Nei. Það er gott að vita til þess að einhver hugsar svona fallega um mann en ég geri þetta nokkuð oft og var bara að æfa mig.“
Sjá einnig: Aðgerðum lokið við Kleifarvatn
Mikael segist hafa verið um klukkustund á kafi og hann hafi ekki farið djúpt og geri það sérstaklega ekki þegar hann sé einn.
„Ég var bara að gera æfingar, leika mér og slaka á í kafi.“
Það er í takt við tilkynningu frá lögreglu sem segir að tilkynningin hafi borist 12:10. Hún hafi verið frá vegfarenda sem sá mann ganga út í vatni. Maðurinn hafi svo komið sjálfur upp úr vatninu austan megin um 50 mínútum síðar.

„Sem fyrr segir var mikill viðbúnaður vegna málsins, en að aðgerðunum komu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og Landhelgisgæslan,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.
Í fyrstu hélt Mikael að kærasta sín hefði hringt eftir aðstoð en hann lætur hana vita áður en hann fer ofan í og hvenær búast megi við að komi uppúr. Honum þótti það þó skrítið þar sem hann hefði ekki farið fram úr ætlun.
Einhver annar hafði þá hringt inn tilkynninguna eftir að hann fór á kaf.
Mikael segir leiðinlegt að hann hafi í raun valdið þessum miklu viðbrögðum en það sé þó gott að vita til þess að viðbrögðin yrðu góð ef eitthvað kæmi upp á.