Skoðun

Bóluefnablús

Ólafur Ísleifsson skrifar

Af hálfu stjórnvalda er sagt að um helmingur þjóðarinnar fái bólusetningu fyrir mitt ár sem kallar á að 150 þúsund manns verði bólusettir á tímabilinu apríl til júlí. Þetta markmið, von eða trú hefur til þessa ekki verið stutt upplýsingum um afhendingartíma bóluefnis. Kári sýnist vondaufur um árangur af viðræðum þeirra Þórólfs við lyfjafyrirtækið Pfizer og lét hafa eftir sér að ekki nema brot af þjóðinni yrði bólusett fyrir árslok. Vona verður að nýjustu fréttir frá Svíþjóð um hjarðónæmi í sumar fái staðist.

Ísraelsmenn hlakka til páskanna

Fram hefur komið á mbl.is að Ísra­el­ar hófu bólu­setn­ing­ar 19. des­em­ber og hafa að meðaltali bólu­sett 150.000 ein­stak­linga á dag. Ein­stak­ling­ar yfir 60 ára, heil­brigðis­starfs­fólk og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma eru í for­gangs­hópi. Ísra­el­ar tryggðu sér bólu­efni Pfizer og BioNTech snemma í far­aldr­in­um. Benjam­ín Net­anya­hu forsætisráðherra sem beitti sér af alefli persónulega í viðræðum við forstjóra Pfizer hef­ur boðað að Ísra­el verði laust úr grip­um far­ald­urs í fe­brú­ar. Ísraelsmenn geta því hlakkað til páskanna og frjálslegri samskipta milli fólks en verið hefur.

Gagnrýni úr þýskri átt

Voru það mistök að binda Ísland við Evrópusambandið varðandi útvegun á bóluefni? Taka má undir með Kára að skynsamlegt hafi verið að Evrópuríkin tækju höndum saman. Hins vegar sætir framkvæmdin vaxandi gagnrýni. Vefmiðillinn mbl.is vitnar 4. janúar sl. í Stef­an Kaiser, frétta­stjóra í viðskiptaf­rétt­um þýska vefritsins Der Spieg­el, sem seg­ir í grein að í samn­ing­un­um við bólu­efna­fram­leiðend­urna hafi ESB samið af sér og þau mistök eigi eftir að reynast dýrkeypt í mannslífum og peningum.

Varpar höfundur því fram að vænlegustu bóluefnin hafi þótt of dýr. Kemur fram í frásögn mbl.is að verðlistinn lak út þegar Eva De Bleeker, ráðherra neyt­enda­mála í Belg­íu, birti óvart verðlista á Twitter rétt fyr­ir jól. Þar kom fram að skammt­ur­inn frá Moderna væri dýr­ast­ur, kostaði 18 doll­ara (2.290 krón­ur), bólu­efnið frá Bi­ontech 12 evr­ur skammt­ur­inn (1.873 krón­ur) og AstraZeneca væri ódýrast með 1,78 evr­ur fyr­ir skammt­inn (278 krón­ur). Er haft eftir Kaiser að verðið á bólu­efn­inu frá AstraZeneca hafi ráðið því að ESB keypti strax í sum­ar 400 millj­ón­ir skammta á spott­prís. Enn sé hins veg­ar ekki búið að leyfa ódýra bólu­efnið og virkni þess sé tals­vert minni en virkni dýr­ari efn­anna frá Bi­ontech og Moderna. Loks er haft eftir Kaiser að kostnaður við bólefnakaupin hefði verið hlægi­leg­ur miðað við það efna­hags­lega tjón, sem kór­ónukrepp­an veld­ur. Við þekkjum það hér á landi þar sem kostnaður ríkissjóðs nemur milljarði í dag í útgjöldum og töpuðum skatttekjum.

Engin tæpitunga í Bretlandi

Í breska vikuritinu The Spectator ritar dálkahöfundurinn og rithöfundurinn Matthew Lynn 9. janúar. Hann segir staðreyndirnar liggja fyrir. Á skrifandi stundu hafi Ísrael bólusett 1,2 milljónir manns eða 13% þjóðarinnar, Bandaríkin 4,6 milljónir og Bretland 1,3 milljón manns. En Þýskaland hafi aðeins náð að bólusetja 265 þúsund, Ítalía 128 þúsund og Frakkland einungis 516 manns. Meira að segja Rússland hafi náð að bólusetja 800 þúsund manns.

Hvað gekk úrskeiðis, spyr höfundur. Fólk, stjórnmál og skrifræði. Höfundur segir forystufólk ekki hafa ráðið við vandann. Reynslan af von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB sem varnarmálaráðherra Þýskalands hafi ekki lofað góðu. Þá veki ekki traust heilbrigðiskommissar Evrópusambandsins sem á að baki skamman stjórnmálaferil í heimalandi sínu á Kýpur

Útkoman var þessi: ESB kom seint til samkvæmisins, lagði fram of fáar pantanir á röngum tíma. Of lág fjárhæð var tekin frá til verkefnisins. Enda þótt Pfizer-bóluefnið sé dýrara en AstraZeneca felur það í sér góð kaup. Hraði skiptir öllu, peningarnir eru smáaurar í stóra samhenginu. Af þessu sýnist mega álykta að ESB sýnist vanbúið í stofnanalegu tilliti og fjárhagslegu til að takast á við heilbrigðismál af þeirri stærð sem veiran kallar á.

Höfundur segir að það sem sé enn verra er að stjórnmálasjónarmið hafi ruðst inn í dæmið. Vitnar hann í Der Spiegelum að Frakkland hafi krafist þess að ESB mætti ekki kaupa meira af hinu þýska BioNTech (samstarfsfyrirtæki Pfizer) en af franska fyrirtækinu Sanofi. En Sanofi-bóluefnið rak upp á sker sem gerði það haldlaust.

Knýjandi spurningar

Eftir að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir greindi frá því á þríeykisfundi 17. desember að slík óvissa væri um afhendingu bóluefnis að endurskoða yrði forgangsröðun við bólusetningar kallaði Miðflokkurinn samdægurs eftir því að heilbrigðisráðherra gæfi Alþingi skýrslu um stöðu mála. Af því varð daginn eftir enda kom tilkynning sóttvarnalæknis eins reiðarslag miðað við það sem áður hafði verið gefið til kynna. Í ljósi áframhaldandi óvissu bað Miðflokkurinn skömmu fyrir jól um umræðu á Alþingi milli jóla og nýárs en við því var ekki orðið. Þá hefur af hálfu Miðflokksins á nýju ári verið óskað eftir því að lagðir verði fram samningar þeir sem íslensk stjórnvöld hafa gert við lyfjafyrirtæki um kaup á bóluefni. Aðgerðir Miðflokksins beinast að því að eyða upplýsingaóreiðunni um bólusetningar sem gætt hefur undanfarnar vikur.

Málið snýst um mannslíf og mikla fjárhagslega hagsmuni. Spurningar eru knýjandi. Ég endurtek spurningar mínar úr fyrri pistli hér á Vísi: Var heppilegast að semja um kaup á bóluefni á skrifstofum ráðuneyta? Hefur verið látið reyna á allar leiðir sem einkaaðilar geta boðið upp á? Hvaða kostir voru kannaðir til þrautar? Voru einhverjar leiðir fyrir fram útilokaðar? Verður bið okkar eftir bóluefni lengri en þyrfti?

Höfundur er þingmaður Miðflokksins. 




Skoðun

Sjá meira


×