
Page Six hefur eftir heimildarmönnum að Kardashian og West vinni nú að því að koma málum sínum á hreint en þau hafa búið á sitt hvorum staðnum um nokkurt skeið og vörðu jólunum ekki saman.
Hún var með börnin í Calabasas en hann hefur haldið sig á búgarðinum sem hjónin eiga í Wyoming.
Kardashian hefur ekki sést með giftingahringinn í einhvern tíma og þá hefur Page Six heimildir fyrir því að hún hafi ráðið lögmanninn Lauru Wasser til að annast skilnaðinn en TMZ segir Wasser hafa verið lögmann Kardashian til lengri tíma.
Meðal annarra þekktra kúnna Wasser eru Angelina Jolie og Johnny Depp.
Búin að fá nóg hvort af öðru

„Kim fékk Kanye til að fara uppeftir [til Wyoming] til að þau gætu lifað aðskildu lífi og fundið út út úr því í næði að fara í sitt hvora áttina og skilja. Hún er hætt,“ hefur Page Six eftir heimildarmanni.
Kardashian hefði lagt sig fram um að vera til staðar fyrir Kanye í glímu hans við geðræn vandamál en nú vildi hún einbeita sér að því að verða lögmaður og berjast fyrir úrbótum í fangelsismálum.
„Á sama tíma er Kanye að tala um að bjóða sig fram til forseta og segja aðra klikkaða hluti og hún er bara búin að fá nóg.“

Annar heimildarmaður segir West vera búinn að fá sig fullsaddan af Kardashian fjölskyldunni og raunveruleikaþátta-lífstíl hennar.
Í júlí fór þúsundþjalasmiðurinn mikinn á Twitter og sagðist hafa verið að reyna að fá skilnað frá Kardashian. Þá kallaði sakaði hann eiginkonuna um að reyna að neyða sig í geðræna meðferð og kallaði tengdamóður sína „Kris Jong-Un“.
Heimilið í Calabasas sagt helsta ágreiningsmálið

West er sagður hafa verið tilneyddur til að mæta í afmælisveislu Kardashian á Tahítí í október síðastliðnum, þar sem hann gaf Kardashian almynd af föður hennar heitnum, Robert Kardashian.
Page Six hefur eftir heimildarmanni að stærsta deilumálið í tengslum við skilnaðinn verði heimili hjónanna í Calabasas, sem var hannað í samvinnu við belgíska hönnuðinn Axel Vervoordt og kostaði parið samtals 7,6 milljarða króna.
Það er þó ekki peningurinn sem ku skipta mestu máli, heldur fasteignin sjálf, sem fjallað var um í Architectural Digest. Kardashian ku eiga landið en West húsið.
TMZ gengur ekki alveg jafn langt og Page Six og segir Kardashian og West enn í hjónabandsráðgjöf. Kardashian hafi farið fram og til baka með það að sækja um skilnað en engar ákvarðanir verið teknar.
Haft er eftir heimildarmönnum að enginn þriðji aðili sé í spilinu.