Hætta á að erlend stórfyrirtæki gleypi ferðaþjónustumarkaðinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. desember 2020 23:31 Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum. Vísir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á því að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum sem áður versluðu við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki.
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, segir mikla hættu á því að erlendir ferðaþjónusturisar sópi að sér viðskiptavinum sem áður versluðu við íslensk ferðaþjónustufyrirtæki. Mikil hætta sé á því ef íslensk ferðaþjónustufyrirtæki geta ekki veitt nægilega góða samkeppni á neytendamarkaði. „Það sem ég hef fyrst og fremst áhyggjur af er að þessi stærri fyrirtæki sem hafa verið leiðandi í markaðssetningu á Íslandi að þau hafi núna takmarkað fé til að fjárfesta í almennum markaðsmálum, sem sagt kynningu og öðru slíku og þar af leiðandi ekki náð til neytenda,“ sagði Þórir í Reykjavík síðdegis í dag. „Töpum gríðarlegum fjármunum úr veltunni yfir í þessa erlendu aðila“ Hann segir mikla hættu á að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki haldi að sér höndum og bíði eftir því að fólk fari aftur að ferðast vegna tekjutaps, í stað þess að sækja fram og sækja til ferðamannsins. „Þetta gefur stórum erlendum ferðaheildsölum mikið tækifæri að fá forskot á markaðnum til þess að ná þessum viðskiptavinum til sín. Það vita allir sem hafa verið í viðskiptum að það er mjög erfitt að ná viðskiptavinunum til baka þegar þú ert búinn að missa þá og ég hef áhyggjur af því að fyrirtækin nái ekki að viðhalda sínum viðskiptasamböndum,“ segir Þórir. Íslensk fyrirtæki geti ekki keppt við þessa risa, sérstaklega ekki þegar svo mikið tekjutap á sér stað, sem eyði milljörðum ár hvert í markaðssetningu. „Þó við séum að koma með miklu minni pening þá höfum við náð ákveðnum árangri en núna þegar er enginn peningur til þá náum við ekki þessum árangri. Síðan gerist það að þessir aðilar koma hér inn á markaðinn og það er bara sá sem býður lægsta verðið, hann fær viðskiptin,“ segir Þórir. Ferðaþjónustan hefur átt undir högg að sækja frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á.Vísir/Vilhelm „Það getur svo sem verið gott fyrir einhverja en ferðamaðurinn veit í raun og veru ekkert með hverjum hann er að fara að ferðast og þá skipta gæðin miklu minna máli og þá fer þetta að snúast eingöngu um verð. Þar fyrir utan töpum við gríðarlegum fjármunum úr veltunni yfir í þessa erlendu aðila og ríkissjóður verður af háum tekjum í formi virðisaukaskatts og annarra tekna sem annars væru eftir í landinu.“ Íslandsstofa er að fara af stað í auglýsingaherferð fyrir landið sem Þórir segir af hinu góða. Fjárfest verði hér fyrir 1200 milljónir á næsta ári í landkynningu en það auglýsi ekki söluvöruna, sem mikil þörf sé á. Fyrirtækin þurfi því að fylgja á eftir og auglýsa sína vöru. „Það hefur verið mjög góður árangur í þessum átaksverkefnum sem við höfum farið í áður, eins og Ísland allt árið og Inspired by Iceland. Þar fylgdu fyrirtækin eftir markaðssetningunni með sinni markaðssetningu, markaðssettu vöruna og settu andlit á vöruna og gátu þar með landað viðskiptunum,“ segir Þórir. Hægt er að hlusta á viðtalið við Þóri í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Ferðamennska á Íslandi Efnahagsmál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík síðdegis Tengdar fréttir Hættan sem blasir við ferðaþjónustunni Í ferðaþjónustu gildir að sjálfsögðu það sama og í öðrum viðskiptum, að mestu tekjurnar skila sér í beinu viðskiptasambandi milli þjónustuveitanda og viðskiptavinar. Með öðrum orðum, að gesturinn kaupi gistinguna, flugfarið, afþreyinguna eða veitingarnar beint af viðkomandi aðila. 11. desember 2020 11:00 Óvissa um ferðaþjónustuna eftir bólusetningu Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagskerfið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir. 6. desember 2020 12:42 Seiglan í íslenskri ferðaþjónustu Ég er stolt af því að hafa starfað með íslenskri ferðaþjónustu til fjölda ára og kynnt hana á erlendum vettvangi. Síðasta árið hef ég þó gert það með öðrum formmerkjum en áður og á þeim tíma hef ég enn betur áttað mig á því hversu mikil seigla er í því fólki sem starfar í henni á Íslandi. 4. desember 2020 14:00 Mest lesið Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Atvinnulíf Rukkað því fólk hékk í rennunni Neytendur Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Viðskipti innlent Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Viðskipti innlent Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Viðskipti innlent Lemon stígur skrefið frá París til Akureyrar Viðskipti innlent Skype heyrir brátt sögunni til Viðskipti erlent Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Atvinnulíf Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Fleiri fréttir Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Fyrrverandi aðstoðarmaður skellir sér aftur í auglýsingarnar Ekkert verður af frekari loðnuvertíð Engin bráð hætta á „bíólausu Íslandi“ Skattar á áfengi hæstir á Íslandi Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Sjá meira
Hættan sem blasir við ferðaþjónustunni Í ferðaþjónustu gildir að sjálfsögðu það sama og í öðrum viðskiptum, að mestu tekjurnar skila sér í beinu viðskiptasambandi milli þjónustuveitanda og viðskiptavinar. Með öðrum orðum, að gesturinn kaupi gistinguna, flugfarið, afþreyinguna eða veitingarnar beint af viðkomandi aðila. 11. desember 2020 11:00
Óvissa um ferðaþjónustuna eftir bólusetningu Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagskerfið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir. 6. desember 2020 12:42
Seiglan í íslenskri ferðaþjónustu Ég er stolt af því að hafa starfað með íslenskri ferðaþjónustu til fjölda ára og kynnt hana á erlendum vettvangi. Síðasta árið hef ég þó gert það með öðrum formmerkjum en áður og á þeim tíma hef ég enn betur áttað mig á því hversu mikil seigla er í því fólki sem starfar í henni á Íslandi. 4. desember 2020 14:00