Innlent

Ellefu greindust innan­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa á sjötta þúsund nú smitast af kórónuveirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa á sjötta þúsund nú smitast af kórónuveirunni á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Ellefu greindust með kórónuveiruna innan­lands í gær. Sex af þeim sem greindust í gær voru í sóttkví , eða 55 prósent. Fimm þeirra sem greindust í gær voru utan sóttkvíar, eða um 45 prósent.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is. Alls eru sjötíu nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Í gær voru 75 á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.

Eitt smit greindist á landamærum þar sem niðurstöðu mótefnamælingar beðið.

569 manns eru nú í einangrun, samanborið við 621 í gær. Þá eru 1.076 í sóttkví í dag, samanborið við 1.060 í gær.

Af þeim ellefu sem greindust innanlands í gær greindust tíu eftir að tekin voru svokölluð einkennasýni, en einn eftir svokallaða sóttkvíar- og handahófsskimun.

Þriðja bylgjan.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 129,0 en var 142,1 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 13,9, en var 15,5 í gær.

Nú hafa 5.114 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Á síðunni segir ennfremur að af þeim veikst hafa af Covid-19 eru 24 nú látnir.

Alls voru tekin 919 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 329 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 77 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun og 269 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×