Skoðun

Hvaða eldsneyti er á þínum tanki?

Ásta Kristín Sigurjónsdóttir skrifar

Af gefinni reynslu hef ég lært að það eru tvær mismunandi tegundir af eldsneyti sem ég get haft á mínum tanki. Önnur tegundin er blanda af mikilli streitu, ótta við mistök og stöðugri hræðslu við að gera ekki nóg, hin tegundin er blanda af trú, jafnvægi, bjartsýni og dassi af kæruleysi. Munurinn á þessum tveimur tegundum er að önnur þeirra er endurnýjanleg og uppsrettan óendanleg, hin er meiðandi, takmarkandi og klárar þann sem nýtir sér hana oftast á stuttum tíma.

Það er einfalt að setja þetta fram, drullu erfitt að tileinka sér þetta en ég lofa að uppskeran er ríkuleg. Okkur skortir hinsvegar oft á tíðum hugrekkið og kjarkinn til þess að leyfa okkur þessa leið, jafnvel teljum okkur linkindur. Við lifum í stöðugum ótta um afdrif okkar, má segja nei? hvað kemur næst, hvernig lifi ég af næstu mánaðarmót og næstu á eftir því, held ég húsinu, fyrirtækinu, starfsmönnum, starfinu mínu? Mun þessi veira vera endalaus, mun einhverntímann eitthvað verða gott aftur? Þetta eru allt hugsanir byggðar á skorti, hvað við erum að missa, hvernig við eigum að lifa af, alltaf á hlaupum í mikilli reiði vegna óréttlætis, ónógra aðgerða, skorti á skilningi og vöntun á leiðum til að minnka skaðann.

Höfum hugfast að allt sem við veitum athygli vex, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt. Við breytum ekki þessum aðstæðum, við getum hinsvegar valið okkur viðhorf til þeirra og unnið með þær þannig að þær dragi ekki úr okkur lífsviljan eða síðustu orkudropana til að standa síðan keik þegar faraldrinum er lokið.

Munum líka að auðvitað má vera einhver streita og margir boltar á lofti, þetta er krefjandi, en þetta á ekki að vera óbærilegt.

Forðist það að „lifa af” of lengi, lífið er að líða og það mun ekki bíða eftir neinum, það þarf að gefa sér frí frá áhyggjum og reiði, gefa sér frí til að vera bara til, gefa sér rými til að skoða hvað maður raunverulega vill gera eftir að þessu öllu líkur. Treysta að framtíðin verði góð og að þar bíði gnægt tækifæra.

Höfundur er framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans.




Skoðun

Sjá meira


×