Innlent

Til skoðunar að af­nema sótt­kvíar­mögu­leikann

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í dag. Lögreglan

Sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að kórónuveiruaðgerðir verði í gildi á landinu þar til gott bóluefni kemur fram, í einhverja mánuði til viðbótar í það minnsta. Næstu dagar muni skera úr um það hvaða aðgerðir hann leggi næst til við heilbrigðisráðherra. Þá sé til skoðunar að skylda fólk til að fara í tvöfalda skimun þegar það kemur hingað til lands í stað þess að slíkt sé valkvætt.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna vegna veirunnar í dag að sýkingin á Landakoti væri helsta áhyggjuefni sitt núna, og þá hvort hún hefði borist út í samfélagið. „Og hvort við sjáum aukningu á samfélagslegum smitum á næstu dögum,“ sagði Þórólfur.

Tölur næstu daga muni jafnframt skera úr um það hvernig Þórólfur hagar tillögum sínum um áframhaldandi veiruaðgerðir á landinu. Núverandi aðgerðir gilda til 3. nóvember en Þórólfur mun á næstu dögum skila inn tillögum til heilbrigðisráðherra.

Þórólfur sagði að aðgerðirnar síðustu vikur hefðu skilað árangri þegar litið er til þess að nýsmituðum hefur farið fækkandi. Erfitt væri að segja til um það hvað hörðu aðgerðirnar sem nú eru í gildi verði viðhafðar lengi áfram. Þó megi búast við einhverjum veiruaðgerðum næstu mánuði.

„Ég held það þurfi að vera áfram takmarkanir. Við getum ekki sleppt öllu, við verðum að vera með einhvers konar takmarkanir ef við viljum ekki lenda í verri vandræðum heldur en við höfum verið í núna undanfarið. Ég held að þær þurfi að búa með okkur næstu mánuðina, þangað til við fáum gott bóluefni, og þannig getum við byggt upp ónæmi í samfélaginu,“ sagði Þórólfur.

Til skoðunar að skylda ferðalanga í skimun

Fjórtán greindust með veiruna við landamæraskimun í gær en beðið er mótefnamælingar í einhverjum tilvikum. Þórólfur kvaðst ekki vita nákvæmlega hvaðan hópurinn í gær hefði verið að koma en benti á að fram að þessu hefðu smitaðir á landamærum einkum komið frá Póllandi.

Núverandi reglur bjóða fólki upp á val milli tvöfaldrar skimunar og tveggja vikna sóttkvíar við komuna til landsins. Þórólfur tók undir áhyggjur af því að erfitt væri að fylgjast með því hvort fólk, sem kysi sóttkví frekar en skimun, héldi sig í sóttkví. Hann sagði að ráðamenn hefðu nú til skoðunar hvort hægt væri að taka burt þetta val og skylda fólk til að fara í tvöfalda skimun þegar það kemur til landsins.

Þórólfur taldi mikilvægt að hafa þessar heimildir, sérstaklega þegar fólk kemur frá löndum þar sem margir hafa verið að greinast með veiruna. „Það er til skoðunar áfram og ég vona að við fáum niðurstöður úr því sem fyrst,“ sagði Þórólfur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×