Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar virðist í miklum vexti víða um heim. Nokkur ríki hafa tilkynnt metfjölda nýsmitaðra á milli daga og dauðsföllin nálgast eina milljón. Mikla aukningu má að hluta til rekja til aukinnar skimunar á heimsvísu. Í heildina hafa 30,8 milljónir smitast af Covid-19, sem nýja kórónuveiran veldur, og 957 þúsund hafa dáið.
Í Frakklandi var tilkynnt að 13.498 hafi greinst smitaðir á milli daga og hafa þeir aldrei verið fleiri frá því faraldurinn hófst. Alls hafa 442 þúsund smitast þar í landi og 31.274 dáið, samkvæmt frétt Reuters fréttaveitunnar.
Smituðum hefur farið hratt fjölgandi á Indlandi og á milli daga greindust 92.605 og þar að auki dóu 1.113. Allt frá því í byrjun ágúst hefur fjöldi nýsmitaðra verið hæstur á Indlandi á degi hverjum. Heilt yfir hafa 5,4 milljónir smitast og 86.752 dáið.
Sjá einnig: Þungamiðja faraldursins að færast til Indlands
Á Bretlandseyjum er útlit fyrir að gripið verði aftur til samkomubanns og harðra sóttvarnarregla. Í gær var tilkynnt að 4.422 hefðu greinst smitaðir á milli daga. Sú tala hefur ekki verið hærri frá því í maí.
Matt Hancock, heilbrigðismálaráðherra, varaði við því í morgun að ef fólk færi ekki að fylgja þeim sóttvarnarreglum sem væru í gildi yrðu reglurnar hertar verulega.
Hancock sagðist hafa miklar áhyggjur af stöðunni og sagði reynsluna sýna að tiltölulega auðvelt sé að missa tökin á bylgjum sem þeirri sem gengur nú yfir Bretland.
Boris Johnson, forsætisráðherra, tilkynnti í gær að íbúar sem brjóti ítrekað gegn reglum um sóttkví gætu verið sektaðir um allt að tíu þúsund pund, sem eru tæpar tvær milljónir króna.
Í Þýskalandi greindust 1.345 á milli daga. Það er langt frá því að vera nærri fjöldanum í mars, þegar rúmlega sex þúsund nýsmitaðir greindust á milli daga. Læknar hafa samt áhyggjur af þeirri fjölgun sem hefur átt sér stað, samkvæmt frétt Zeit.

Staðan önnur í Svíþjóð?
Svíþjóð virðist enn sem komið er vera að sleppa við þessa bylgju sem virðist nú ganga yfir Evrópu og stóran hluta heimsins. Samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar, þar sem vísað er í tölur frá Sóttvarnastofnun Evrópu, er nýgengni smita í Svíþjóð síðustu tvær vikur 30,3 á hverja hundrað þúsund íbúa. Á Spáni er talan 292,2. Í Frakklandi er hún 172,1. Á Bretlandi 61,8 og 69,2 í Danmörku.
Öll þessi ríki gripu til umfangsmeiri aðgerða en Svíþjóð gerði í upphafi faraldursins. Á móti kemur að hlutfall látinna á íbúa er mun hærra í Svíþjóð en í öðrum norrænum ríkjum. Í heildina hafa 88.237 smitast og 5.864 dáið. Það samsvarar um 57,5 dauðsföllum á hverja hundrað þúsund íbúa.
Sérfræðingar vara einnig við því að enn sé of snemmt að segja til um hvort að stefna yfirvalda í Svíþjóð sé að bera árangur.
Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar, sagði í samtali við AP fréttaveituna að hann útiloki ekki að önnur bylgja muni skella á landinu. Stíga þurfi varlega til jarðar og þá sérstaklega núna þegar ungt fólk er að snúa aftur til skóla.