Viðskipti innlent

Bein út­sending: Ræða mögu­leika og sam­keppnis­hæfni Ís­lands

Atli Ísleifsson skrifar
Hvernig mun íslenskt atvinnulíf ná fótfestu eftir Covid 19? Þetta er ein þeirra spurninga sem verður rædd á ráðstefnunni.
Hvernig mun íslenskt atvinnulíf ná fótfestu eftir Covid 19? Þetta er ein þeirra spurninga sem verður rædd á ráðstefnunni.

Netráðstefnan Towards Sustainable Growth in a Competitive World hefst núna klukkan 8:30 þar sem ræddir verða möguleikar og samkeppnishæfni Íslands á viðskiptalegum, samfélagslegum og faglegum grunni.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnar ráðstefnuna og mun Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra svo flytja stutt erindi. Sérfræðingar á sviði viðskiptaþróunar, klasaþróunar og hringrásarhagkerfisins munu svo velta fyrir sér spurningum á borð við:

  • Hvernig mun íslenskt atvinnulíf ná fótfestu eftir Covid 19?
  • Hvernig hröðum við bataferlinu í gegnum virkt samstarf ólíkra atvinnugreina?
  • Hvað eiga öflugustu útflutningsgreinar Íslands sameiginlegt og hvernig nýtum við styrkleikana til góðs?

Það er Íslenski ferðaklasinn, Klasasetur Íslands/Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Íslenski sjávarklasinn, Íslenski orkuklasinn, Álklasinn og Landbúnaðarklasinn sem standa fyrir ráðstefnunni.

Fylgjast má með henni í spilaranum að neðan.

Dagskrá ráðstefnunnar:

  • Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir – ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra opnar ráðstefnuna.
  • Bjarni Benediktsson – fjármála- og efnahagsráðherra heldur stutt erindi.
  • Dr. Christian Ketels – sérfræðingur hjá stofnun Michael E. Porter prófessors við Harvard háskóla fjallar um sjálfbærni á tímum covid-19.
  • Merete Daniel Nielsen – stofnandi Cluster Excellence Denmark fjallar um hringrásarhagkerfið, grænar lausnir og klasastarf í víðu samhengi.
  • Einnig verða Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, Sara Björk Guðmundsdóttir, starfsmaður Sjávarklasans og Kristján Leóson þróunarstjóri DT-Equipment með örerindi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×