Innlent

„September hefst með látum“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Gular viðvaranir eru í gildi fyrir fimmtudag og föstudag.
Gular viðvaranir eru í gildi fyrir fimmtudag og föstudag. Mynd/Veðurstofa Ísland

„September hefst með látum.“ Svo hljóðar upphafið á Facebook-færslu Veðurstofunnar þar sem greint er frá því að gefnar hafi verið út gular viðvaranir fyrir fjögur spásvæði síðar í vikunni.

Viðvaranirnar ná yfir Norðurland vestra, Norðurland eystra, Miðhálendið og Austurland að Glettingi og eru þær í gildi frá því klukkan 17 á fimmtudaginn fram að miðnætti á föstudag, hið minnsta.

„Útlit er fyrir norðan hvassviðri eða storm, 15-20 m/s og talsverða úrkomu, sem fellur ýmist sem slydda eða snjókoma til fjalla. Veðrið gæti skapað vandræði fyrir búfénaði, einkum kindum til fjalla. Líklegt er að færð spillist á fjallvegum og ferðalangar á svæðinu ættu að huga vel að veðurspám,“ segir á Facebook-síðu Veðurstofunnar.

Ekki djúp en kröpp

Eiríkur Örn Jóhannsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir í samtali við Vísi að sökudólgurinn sé lægð sem sé að koma upp að landinu.

„Ekkert sérstaklega djúp en svolítið kröpp,“ segir hann. Það muni koma betur í ljós næstu daga hvernig lægðin muni haga sér en þó sé ekki viðbúið að hún nái inn í helgina.

Hvetur hann íbúa á svæðunum sem viðvaranirnar ná til til þess að huga að lausamunum í görðum og nærliggjandi svæðum, enda muni talsvert hvassviðri fylgja lægðinni.

Veðurhorfur á landinu

Suðvestan 3-10 m/s og skúrir, einkum sunnan- og vestanlands. Snýst í norðaustan 8-13 á Vestfjörðum undir kvöld, en lægir heldur í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil.

Gengur í norðaustan 8-15 með rigningu á morgun, en úrkomuminna norðvestantil. Kólnar heldur fyrir norðan.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Norðan 10-18 m/s, hvassast norðvestantil. Rigning, talsverð norðaustan- og austanlands, en úrkomulítið um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst.

Á föstudag:

Norðvestan 8-15 m/s, en 15-20 norðan- og austanlands fram að kvöldi. Rigning á Norður- og Austurlandi og slydda til fjalla, en annars þurrt að kalla. Dregur úr vindi og léttir til sunnan- og vestantil seinnipartinn. Hiti 2 til 9 stig, svalast norðanlands.

Á laugardag:

Breytileg átt, 3-8 m/s og bjartviðri, en lítilsháttar væta norðaustanlands. Hlýnar heldur í veðri.

Á sunnudag:

Sunnan strekkingur eða allhvass vindur og rigning, en lengst af þurrt norðaustantil. Hlýnandi.

Á mánudag:

Allhvöss sunnan og síðar vestanátt. Rigning, einkum vestantil og milt veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×